Menntamál.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að setja þessa umræðu á dagskrá. Að mínu mati þarf að laga menntakerfið betur að þeirri staðreynd að við búum í fjölþjóðlegra samfélagi en nokkru sinni fyrr. Því fylgir víðtækari breidd á öllum sviðum mannlegrar tilveru. Íbúar íslensks samfélags í dag eru með margvíslegan menningarlegan bakgrunn. Aukin fjölbreytni gerir kröfu um meiri víðsýni og umburðarlyndi. Þess vegna fagna ég sérstaklega hvernig við erum að feta þá slóð að rýmka skilgreiningar og losa um ramma við lagasetningu.
Fjölmenningin felur vissulega í sér áskoranir. Sem dæmi má nefna að í dag eru 25% nemenda í framhaldsskólum landsins af erlendu bergi brotin. Reikna má með að hlutfallið sé svipað í leik- og grunnskólum. Þar fyrir utan eru þarfir nemenda mismunandi burt séð frá uppruna. Nemendur eru einnig með ólíkar væntingar en öll eiga þau rétt á námi og stuðningi við hæfi. Börnum á ekki að mismuna. Við viljum að þau sitji sem mest við sama borð án tillits til innri eða ytri aðstæðna, kyns, litarháttar, þjóðernis, fötlunar eða efnahags.
Í frumvarpi mennta- og barnamálaráðherra um breytingar á lögum um framhaldsskóla er í auknum mæli tekið tillit til fjölbreytileikans. Við innritun nemenda verður nú heimilt að líta til fleiri þátta sem tengjast nemanda en einkunna í grunnskóla, eins og áhugamála eða annarra upplýsinga sem nemandi lætur skólanum í té, svo sem sjónarmiða sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla. Námið, ástundun og námsárangur munu auðvitað ávallt skipta mestu máli enda eru nemendur í skóla til að læra og gera á kröfu um að nemendur geri sitt besta á öllum stundum. Það er hins vegar mikilvægt að bjóða nemendum upp á fjölbreyttar aðferðir og leiðir í kennslu án þess að missa sjónar á lokatakmarkinu. Við viljum skapa svigrúm og tækifæri þannig að allir geti fundið sína fjöl, hvort sem er um ræða iðn-, verk- eða bóknám. Það er okkar sem setjum lögin að skapa þetta svigrúm.