Menntamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka eins og aðrir fyrir þessa umræðu og tel mikilvægt að við ræðum um menntamál sem oftast hér og ég hjó eftir því í inngangsorðum hæstv. ráðherra að hann fór yfir þau verkefni sem ráðuneytið hefði á takteinum. Ég er ánægð að heyra að hæstv. ráðherra er að fylgja eftir þeim verkefnum sem sett voru á laggirnar í síðustu ríkisstjórn. Þau voru mikilvæg, mjög mikilvæg skref. En á sama tíma gagnrýndi ég líka fyrrverandi hæstv. ráðherra barna- og menntamála fyrir það að við getum ekki bara hugsað um þá sem líða illa í skólunum og hugað að því, við þurfum líka að kenna öllum börnum að lesa, kenna öllum börnum stærðfræði og tryggja að öll börn fái gott nám. Hv. þingmaður sagði áðan, ég heyrði það en náði ekki alveg hver það var, og talaði um skólann sem jöfnunartæki. Það var örugglega hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir. Já, grunnskólinn á Íslandi er mikilvægt jöfnunartæki en við eigum ekki að jafna niður á við. Við eigum ekki að sætta okkur við lægsta samnefnarann í skólakerfinu okkar. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom síðan inn á ákveðna punkta sem hann og við Sjálfstæðismenn höfum verið að leggja til og mig langar líka að nefna í þessari umræðu þingsályktunartillögu sem ég hef lagt fram og fæ vonandi að mæla fyrir fljótlega sem lýtur að þekkingarmiðstöð um móttöku erlendra nemenda. Þetta er einhvers konar útvíkkun á MEMM-verkefninu sem er til staðar í Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í dag og snýr að því að við tökum þannig á móti nemendum sem eru af erlendu bergi brotnir að þau fari fyrst í gegnum einhvers konar móttökudeild, móttökuskóla þar sem okkar færasta fólk fær að kenna þessum börnum og greina þarfir þeirra áður en þau koma inn í hinn hefðbundna bekkjarskóla.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og ég hvet hæstv. ráðherra ekki bara til að fylgja eftir þeim góðu verkefnum sem voru á dagskrá hjá síðustu ríkisstjórn heldur ganga enn lengra því að við vitum öll að við þurfum, og ljóst að í þessum sal er mikill stuðningur við það, að stíga enn fleiri og stærri skref til að (Forseti hringir.) tryggja það að íslenskir nemendur fái góða menntun. Því miður er staðan ekki nógu góð í dag.