157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

Menntamál.

[13:46]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ætla að játa það að sem foreldri þriggja barna á grunnskólaaldri þá á maður það stundum til að eyða orkunni og fókusnum sínum í þá hluti sem maður vill laga í skólakerfi barnanna sinna. Ég hef eytt miklu púðri í að reyna að bæta skólalóð barnanna minna, fá öflugt tómstundastarf á miðstigi og það að boðið sé upp á holla og góða næringu í skólum barnanna. Og þó að þetta skipti allt miklu máli og við eigum að gera miklar kröfur til grunnskólans þá staldrar maður allt of sjaldan við og hugsar með þakklæti um það öfluga kerfi sem við höfum byggt upp hér á Íslandi. Þegar börnin hefja sína grunnskólagöngu með faglegum kennurum í sex ára bekk fá þau aðgang að gjaldfrjálsum námsgögnum, aðgang að tölvum, fagþekkingu, stoðþjónustu ef þau þurfa stuðning, námsráðgjafa, skólasálfræðingi, tómstundafræðingi og stuðningsfulltrúa, allt fólk sem tekur höndum saman til að reyna að tryggja börnunum mínum góðan árangur í menntakerfinu. Við eigum að staldra aðeins við og vera þakklát fyrir þetta kerfi sem foreldrar okkar og ömmur og afar byggðu upp.

En það er ekki nóg að vera þakklát fyrir kerfið, við verðum líka að passa upp á það að við töpum ekki þessum gæðum sem við höfum byggt hér upp saman því að það eru vissulega áskoranir í skólakerfinu í dag. Við erum með fjölbreyttari nemendahóp sem krefst aukins stuðnings inn í skólakerfið. Það er ekki hægt að kenna sama nemendahóp í dag með sömu aðferðum og við gerðum áður. Á sama tíma eru börnin okkar að verja meiri og meiri tíma við skjá í enskumælandi umhverfi. Þau eru að missa áhuga á lestri, þau hreyfa sig minna, þau verja meiri tíma í einsemd. Allt eru þetta verkefni sem skólinn þarf að takast á við. Við sem foreldrar verðum að taka höndum saman, axla okkar ábyrgð, tryggja það að börnin okkar fái sinn svefn, fái sína næringu, en líka að við stjórnvöld styðjum við kennarana okkar, að við aukum stoðþjónustu inni í skólunum okkar og tryggjum það að við höldum áfram að vera með skóla í fremstu röð. En það verður ekki gert nema ríki, sveitarfélög, fagfólk og foreldrar taki höndum saman, því að við verðum að gera okkur grein fyrir hvað við eigum dýrmætt kerfi saman.