Menntamál.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka málshefjanda, hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, fyrir umræðuna og jafnframt hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir þátttökuna og einnig þakka fyrir þá umræðu sem hér fer fram. Við lifum á tímum mikilla samfélagsbreytinga. Mikil fólksfjölgun hefur orðið hér á landi undanfarin ár og samfélagið hefur orðið fjölbreyttara. Þessi þróun hefur áhrif á öll svið samfélagsins, ekki síst menntakerfið okkar. Í dag vil ég ræða hvernig við getum brugðist við þessum breytingum, mætt áskorunum og nýtt þau tækifæri sem felast í fjölbreytileikanum.
Fyrst ber að nefna íslenskukennslu. Fjöldi nemenda í skólum landsins hefur annað móðurmál en íslensku. Þessir nemendur standa frammi fyrir tvöföldu verkefni í sínu námi, það er að tileinka sér námsefni um leið og nýtt tungumál er numið og að auki er viðkomandi að aðlagast íslensku samfélagi í víðara samhengi en innan veggja skólans. Ef inngilding í samfélagið á að takast er brýnt að nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku hafi tækifæri til að læra tungumálið okkar. Það er nauðsynlegt að tryggja að kennarar hafi þekkingu og úrræði til að mæta þörfum þessara nemenda en tungumálið er aðeins hluti myndarinnar. Námsmat og einkunnagjöf þurfa einnig að þróast. Hefðbundin próf ná ekki alltaf að mæla raunverulega færni, sérstaklega hjá nemendum sem eru að tileinka sér nýtt tungumál. Við verðum að horfa til fjölbreyttari matsaðferða sem leggja áherslu á hæfni, framfarir og þátttöku. Þessi breyting og eftir atvikum aðlögun matsaðferða er í raun mikilvæg öllum nemendum óháð bakgrunni.
Hvernig getur menntakerfið brugðist við fjölbreyttum þörfum nemenda? Svarið felst m.a. í sveigjanleika, jöfnum tækifærum og gæðum skólastarfs. Við þurfum að tryggja að nemendur óháð uppruna, tungumáli eða aðstæðum hafi jafnan aðgang að menntun. Það krefst samvinnu, stefnumótunar og virkrar þátttöku allra sem að mótun og skipulagi menntunar koma.
Herra forseti. Við höfum tækifæri til að aðlaga menntakerfi okkar að breyttum veruleika þannig að það nýtist jafnt nemendum sem fæddir eru hér á landi og uppaldir og þeim sem eiga annað tungumál en íslensku að móðurmáli. Ef okkur tekst það munu allir nemendur búa við sanngjarnara kerfi en nú er, kerfi sem styrkir nemendur og býr þá undir frekara nám með þátttöku í atvinnulífi. Með því að nýta fjölbreytileikann sem auðlind, ekki hindrun, getum við skapað skólaumhverfi þar sem allir nemendur blómstra. Ég vil nefna það sérstaklega að aðlögun menntunar hér á landi að breyttum nemendahópi má ekki koma niður á þeim nemendum sem hér eru fæddir og uppaldir og eiga hér á landi sinn bakgrunn. Við tökum best á við breyttar aðstæður með því að hafa í heiðri eigin sögu og menningu.
Herra forseti. Það má með sanni segja að mótun menntunar til framtíðar hér á landi sé í okkar höndum. Við skulum gæta þess að nemendur fái búið við menntun sem þeir upplifa allt í senn réttláta, öfluga og ekki síst aðgengilega fyrir alla. Menntun sem undirbýr þau fyrir öfluga og heiðarlega þátttöku í samfélagi okkar.