157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

Menntamál.

[13:56]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir málefnalega og góða umræðu. Þetta er virkilega nauðsynlegt mál sem við þurfum að ræða og ég er mjög ánægður með þá umræðu sem fór hér fram. Í sambandi við kennaranámið þá er það auðvitað á vegum háskólaráðherra og við erum þegar byrjaðir á samtali um það hvernig sé hægt að bæta kennaranám og hvernig við getum leyst þann vanda sem er skortur á kennurum. Ég vil líka taka undir og ítreka að við verðum að tala um menntakerfið. Við erum með gott menntakerfi, við erum að mörgu leyti með frábært menntakerfi, en það eru auðvitað brestir og það er það sem við þurfum að taka á. Við verðum líka að passa okkur á að tala ekki niður kerfið vegna þess að það gerir engum gagn. Við erum í þeirri stöðu að þriðjungur barna er af erlendum uppruna og það er, eins og ég hef heyrt, skelfileg staða ef við erum með barn sem talar hvorki íslensku né sitt upprunalega tungumál og getur þar af leiðandi ekki tjáð sig, það megum við ekki að láta eiga sér stað.

Síðar þurfum við líka að byggja brýr á milli foreldra og barna. Við verðum að ná tengslum þar, sérstaklega hvað varðar börn með erlendan uppruna. Það eru ýmsar áskoranir í kerfinu. Skólaþjónustan er að koma. Ég er spurður: Af hverju ertu ekki búinn að koma þessu inn, af hverju ertu ekki búinn að koma með þetta? Ég er með þessi frumvörp í dag sem eru fá en ég vildi gera þau vel og ég er einmitt með skólaþjónustufrumvarpið og önnur frumvörp sem ég er að gera og ég vil gera þau vel. Það hefur oft verið kvartað yfir því að við séum að demba hér inn frumvörpum, illa unnum. Það ætla ég ekki að gera. Ég ætla að gera mitt besta til að sjá til þess að við séum með frábær frumvörp hér sem við getum svo öll gert betri. Ég vona og mér sýnist við vera á þeirri leið að við tökum menntamálin og börnin okkar (Forseti hringir.) út úr pólitíkinni og sameinumst um að gera allt sem við getum til þess að gera líf þeirra betra.