157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

88. mál
[14:28]
Horfa

Flm. (Sigmar Guðmundsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég rakti í ræðunni, og eins og komið er inn á í greinargerðinni, þá er það þannig að dómstólar hafa ekki skorið úr um það hvort þetta sé eðlilegt eða sanngjarnt ákvæði. Það er a.m.k. skoðun okkar flutningsmanna að þarna sé verið að mismuna fólki á þeim forsendum að það sé með sjúkdóm. Ég hygg að þetta hafi verið svolítið mismunandi eftir lífeyrissjóðum hversu strangir þeir hafa verið á þessu. En ég rakti alla vega í minni ræðu að það eru dæmi um að lífeyrissjóðir hafi samið sig sérstaklega frá þessu. Mér finnst það eitt og sér auðvitað gefa ágætisvísbendingar um það hversu föstum fótum mönnum finnst þeir standa þegar þeir eru að beita þessu ákvæði.

Eitt af því sem þyrfti að gera á vettvangi nefndarinnar er að kalla eftir gögnum frá lífeyrissjóðunum um það hvort oft hafi verið farið í það að semja sig frá þessu tiltekna ákvæði. Mig langar að höfða meira til almennrar skynsemi okkar allra. Þegar fólk er með fíknisjúkdóm þá er það ekki að velja sér það sjálft. Sumir eru ofurseldir þessum sjúkdómi frá unglingsárum og alast mögulega upp í aðstæðum sem gera það að verkum að það að nota áfengi eða vímuefni veitir einhverja tiltekna hugarró sem áður fannst ekki í umróti lífsins. Þannig getur sjúkdómur þróast. Hjá öðrum byrjar sjúkdómurinn að þróast jafnvel á efri árum. Þetta er svo rosalega misjafnt. En ég held að sé algerlega klárt að sú vísindalega þekking sem núna er til um þennan geðsjúkdóm ætti að vera grundvöllur þess að það ætti ekki að vera hægt að mismuna íslensku fólki út frá því að það sé með þennan sjúkdóm. Við reynum auðvitað að koma í veg fyrir það eftir fremsta megni. En hversu oft hefur reynt á þetta eða hversu oft lífeyrissjóðir hafa samið sig frá þessu, ég þekki það ekki en það eru að a.m.k. einhver dæmi til um það.