157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

88. mál
[14:34]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir sína framsögu og fyrir að leggja fram þetta góða mál. Ég segi eins og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson; ég hafði ekki hugmynd um að þetta ákvæði væri í íslenskum lögum fyrr en ég sá þetta þingmál. Í mínum huga er þetta nokkuð hrein og klár mismunun því að eins og kom fram í framsöguræðu hv. þm. Sigmars Guðmundssonar þá er enginn sem kýs að lenda í því sem hér er kallað sjálfskaparvíti, sem ég tel að sé nokkuð rangnefni því að það er enginn sem kýs sjálfur að vera með fíknisjúkdóm. Það er enginn sem kýs að festast í viðjum þess sjúkdóms með þeim hræðilegu afleiðingum sem því fylgir.

Hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom inn á umsögn í sinni framsögu sem hafði borist um málið þar sem kom fram það sjónarmið að það væri verra að verðlauna fólk fyrir sjálfskaparvíti. Það kemur mér svo sem ekki á óvart að þetta sé viðhorf sem sumir hafa gagnvart þessu þingmáli en ég tel sjálfur að það sé algerlega byggt á í besta falli misskilningi og í versta falli fordómum.

Það er enginn sem kýs sér þetta ástand. Að mínu mati er það eins og að segja að maður sé að verðlauna fólk fyrir að setjast upp í bíl því að ef það lendir síðan í bílslysi þá eigi það rétt á örorkulífeyri. Ég fagna því að heyra að það hafi borist góðar umsagnir, annars vegar frá verkalýðshreyfingunni og hins vegar frá Landssamtökum lífeyrissjóða sem taka undir það, með leyfi forseta, „að ákvæði þetta sé barn síns tíma“ og þau fullyrða jafnframt að ákvæðið þarfnist endurskoðunar.

Ég vona heils hugar að þetta mál fái góða umfjöllun í nefndinni og nái fram að ganga og að við getum öll komið okkur saman um að leiðrétta þessa tímaskekkju. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég vildi bara koma hingað upp og lýsa yfir mínum stuðningi við þetta góða þingmál.