veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Þetta frumvarp er mikilvægt fyrir ýmissa hluta sakir. Þetta er frumvarp sem snýr að atvinnufrelsi. Þetta er í raun frelsisfrumvarp, þ.e. að auka möguleika nýliða til að ganga inn í þessa atvinnugrein, þannig að þetta er frumvarp sem unnendur frelsis hér á hinu háa Alþingi ættu að geta tekið undir. Þetta er kannski öllu merkilegra, tel ég vera, heldur en t.d. frelsi til þess að selja áfengi vítt og breitt. Þetta er því mál sem snýr að atvinnufrelsi og skiptir mjög miklu máli.
Þetta frumvarp er mjög mikilvægt fyrir annarra hluta sakir. Þetta snýst líka um það að þessi atvinnugrein, grásleppuveiðar, festist ekki í ráðgjöf sem er að öllum líkindum ekki rétt. Það eru mjög miklir veikleikar í ráðgjöfinni en ef það er farið að búa til einhverjar framseljanlegar veiðiheimildir er hætt við því að þessi kvótasetning fari að verja ráðgjöfina sem er að öllum líkindum röng og ég mun fjalla um það síðar í ræðu minni. Þetta skiptir einnig máli vegna hags sjávarbyggðanna því að það er hætt við því að það sé hægt að kaupa upp öll atvinnuréttindi til grásleppuveiða, t.d. í Húnavatnssýslu, á Skagaströnd, og það mun leiða til samþjöppunar. Þetta eykur einnig þrýstinginn á strandveiðar. Þó svo að ég hafi ekki áhyggjur af því að það verði veitt verulega mikið á strandveiðum og vilji gefa veiðar alfrjálsar með handfærum, þá eru ýmsir sem sjá einhverjar hættur í því. En þetta er einmitt frumvarp sem léttir álagið af strandveiðum. Í þriðja lagi þá er þetta kannski síðasti kaflinn í Verbúðinni, þetta er síðasta tegundin sem var sett inn í gjafakvótakerfið og það er kaldhæðnislegt að það var ráðherra Vinstri grænna sem beitti sér af alefli fyrir því að þessi tegund færi inn í gjafakvótakerfið. Það er að mörgu leyti sorglegt vegna þess að grásleppukarlinn er hluti af menningarsögu þjóðarinnar, ímynd okkar, að það sé hægt að nýta hér grunnfiskimið jafnvel í fjörum landsins til nytja og það lendi ekki í einhverju framseljanlegu kerfi.
Þetta spilar einnig inn í réttindi sjávarjarða, að atvinnuréttindi eða nýtingarréttindi þeirra séu ekki komin inn í eitthvert kerfi sem er hægt að framselja út og suður án þess að landeigendur, þ.e. þar sem er verið að nýta þessa nytjategund, grásleppuna, séu spurðir og ekki hafðir með í ráðum heldur eru jafnvel bara sviptir því um aldur og ævi að fá að nýta jarðir sínar. Það eru því ýmsir þættir í þessu sem er rétt að hafa í huga þegar verið er að afgreiða þetta mál. Ég vonast til þess að það fái hér skjóta afgreiðslu í þinginu, enda snýst þetta um atvinnuréttindi, stöðu hinna dreifðu byggða og fleiri þætti.
Ég ræddi hérna um þá veikleika í þessari ráðgjöf sem þessi úthlutun byggir á. Það er búin til einhver ein kaka fyrir landið, það er Hafró sem býr hana til og svo eignast einhverjir sneið sem er hægt að framselja. Þetta er voðalega fínt í hagfræðideild Háskóla Íslands en þegar betur er að gáð þá er þetta mengi sem er verið að útdeila, það stendur ekki á traustum fótum. Það er t.d. ekkert samband á milli hrygningarstofns og nýliðunar. Það kom mikið af grásleppu 2020 og þess vegna ættum við að fá meira eða góða vertíð 2024. Það er þarna ekkert samband svo vitað sé. Það er heldur ekki vitað hvað grásleppan er gömul þegar hún kemur til hrygningar. Líklegast er hún þriggja til fjögurra ára og flest, ef ekki allt, bendir til þess að yfir 90% af grásleppunni drepist eftir hrygningu þannig að það að útdeila úr þessu mengi með svona óvissum forsendum er ekki ábyrgt. Það var ekki ábyrgt að setja þetta inn í þetta framseljanlega kvótakerfi. Kerfið byggir á því að það sé aldrei veiddur meira en helmingurinn af því sem kemur af grásleppugöngunni, þ.e. að fiskveiðidánartalan verði aldrei meiri en 0,75, eins og það heitir á fínu máli, en ef maður reynir að einfalda þetta þá er það að það sé aldrei veitt meira en rétt rúmlega helmingurinn af göngunni og helmingurinn fái að hrygna. Vandinn í þessu er að stofnmælingin sjálf, þ.e. hvað grásleppugangan er stór, er mjög óviss enda byggir mælingin á togararalli sem er þá rannsókn með botntrolli en óvart er grásleppan uppsjávarfiskur en sýnir vissulega dægursveiflu þannig að á daginn fer hún neðar í vatnsmassann og ofar þegar myrkrið nær völdum til að næla sér í dýrasvif. Hafró viðurkennir þessa óvissu og þess vegna er mengið eða ráðlögð veiði fyrir árið 2025 ekki aðeins byggð á mælingunni 2025. Aðeins 70% af útgefnum kvóta byggist á henni, það byggist einnig á árinu á undan, sem hefur nákvæmlega ekkert að gera með þá göngu sem var í vor og fram á sumar. En það byggist samt sem áður 30% á því hvað er leyfilegt að veiða í ár. Það er auðvitað einkennilegt að gera það og undirstrikar enn og aftur hvað forsendurnar eru veikar.
Hvers vegna fullyrði ég að veiðihlutfallið sé að öllum líkindum miklu minna? Hvað veit ég um það? Jú, við höfum mælingar frá BioPol á Skagaströnd þar sem er merktur fiskur. Hann er merktur og síðan, ef það væri rétt að veiðidánartalan væri í kringum 50%, þá ættum við að fá helminginn af merkjunum til baka að loknu veiðitímabilinu. En svo er bara alls ekki. Það hafa verið merktir tæplega 9.400 fiskar á árunum 2008–2011 hjá BioPol. Endurheimturnar voru langt frá því og af þessum 50% voru yfirleitt fyrir innan 10%. En hvað sem því líður þá er það þannig að merkin ættu að vera meiri, sérstaklega í ljósi þess að endurheimturnar og merkingarnar eru á veiðislóðinni. En það er stórt strandsvæði hér á Íslandi þar sem engar veiðar eru stundaðar. Ég held því að það sé borðleggjandi, bæði út frá merkingu og út frá þeirri staðreynd að það sé ekki verið að veiða á stórum landsvæðum við ströndina, að veiðarnar séu langt innan við umræddan helming sem Hafró geldur varhuga við. Út frá ábyrgri nýtingu auðlinda þá erum við auðvitað ekki að festa okkur í einhverri bóndabeygju sem er að öllum líkindum ekki rétt, a.m.k. ekki fyrr en búið er að gaumgæfa alla þætti málsins. Við höfum bara skýr dæmi frá því í vor að veiðiráðgjöfin var ekki í neinu samræmi við veiðina, það var landburður af grásleppu og lítill kvóti. Það sem þetta gerði, þessi kvótasetning, og við fengum reynslu af því í vor, að þrátt fyrir mikla veiði nýttu menn ekki veiðiheimildirnar og það er auðvitað stórundarlegt. Ástæðan er sú að í þessu kvótakerfi okkar þá getum við jafnvel leigt til okkar aðrar heimildir til að missa ekki veiðiheimildirnar sem einhverjir höfðu í litlum mæli, og fengið þá þær veiðiheimildir sem er ódýrara að leigja til sín og látið þá þessar falla niður. Þannig að það sem við gerðum með kvótasetningunni var að koma á sóun. Það kom skýrt fram í veiðinni á liðinni vertíð og ég held að ef menn skoða þetta í heild sinni þá sjái menn að forsendurnar eru veikar, kerfið hefur ekki leitt gott af sér og veiðarnar hafa að öllum líkindum mun minni áhrif á stofninn heldur en menn gera hér ráð fyrir.
En hvað segja nýjustu rannsóknir um grásleppuna? Þær segja m.a. að grásleppan er út um allan sjó. Það voru ekki sérstakar grásleppurannsóknir sem sýndu fram á það heldur makrílsrannsóknir í Norður-Atlantshafi. Það sést að hvar sem veiðarfærum var dýpt niður þá var þar grásleppa nánast í miklum meiri hluta af rannsóknarstöðunum, á togslóðinni. Á 71% togslóða fékkst grásleppa. Þannig að áður en menn fara að setja atvinnuhöft og framseljanlega kvóta þá verða menn að horfa til þess hvort við getum ekki nýtt þessa auðlind betur og jafnvel aukið veiðarnar umfram það sem kemur fram í umræddri kvótasetningu. Það er margt áhugavert við grásleppuna. Hún ferðast og meira að segja hefur grásleppa sem merkt hefur verið við Íslandsstrendur veiðst við Danmörku. Það er því margt óvitað og áður en menn fara og setja af stað kerfi um aldur og ævi og festa í sessi einhverja köku sem er búin til á mjög veikum grunni þá held ég að það sé rétt að staldra við og fara betur yfir málið.
Málið er, eins og ég kynnti áðan, frelsismál og þetta er mikilvægt fyrir sjávarbyggðirnar. Ekki gera atvinnuréttindi hér í enn frekari mæli, hvort sem það er á Raufarhöfn eða Þórshöfn, að einhverri söluvöru. Reynum frekar að opna á frelsið og tryggja að ekki sé verið að setja óþarfa höft á atvinnuveg sem er nátengdur menningu landsins. Ef menn ætla að taka jafnvel grásleppuna í burtu frá stöðum eins og Hofsósi, Siglufirði eða Ólafsfirði án þess að hafa einhverjar betri forsendur, þá er það verulega óábyrgt. Ég vona svo sannarlega að þingmenn sameinist um það að fara vel yfir málið og gera það hratt og vel að lögum.