barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.
Herra forseti. Ég hef á meðan ég hef setið hér á þingi lagt fram nokkur mál sem hafa þann einfalda en mikilvæga tilgang að vilja aðstoða fólk við að eignast börn. Það er ekki öllum gefið og reynist ýmsum býsna erfitt og þá þarf fólk að leita á náðir tækninnar. Sem betur fer erum við svo lánsöm að eiga þá tækni til. En það frumvarp sem ég mæli hér fyrir lýtur að því að gera reglur eilítið frjálsari með það fyrir augum að hjálpa fólki í þeim tilgangi í staðinn fyrir að hafa hann óþarflega erfiðan þegar það er engin ástæða til.
Kannski er rétt að nefna hér í byrjun framsögu minnar í þessu máli að ég mun síðar meir mæla fyrir öðru máli sem ég hef áður lagt fram varðandi tæknifrjóvganir, en það mál varðar greiðsluþátttöku ríkisins í þessu mjög kostnaðarsama ferli, bæði hérlendis og erlendis, og hvernig sú niðurgreiðsla ríkisins getur verið bæði skynsamlegri og sanngjarnari. En það er annað mál en hér um ræðir.
Ég mæli fyrir þessu tiltekna máli hér í fjórða sinn á þingi. Það er í fimmta sinn sem það er lagt fram en það var ekki sett á dagskrá á síðasta þingvetri. Það er þó breytt frá fyrstu tveimur skiptunum þegar ég mælti fyrir því þar sem það innihélt þá tillögu um breytingu að felldar yrðu úr þágildandi lögum það sem ég hef kallað frekar ógeðfelldar reglur sem sneru að því að þeim fósturvísum sem fólk ætti eftir tilraunir sínar í tæknifrjóvgunum yrði umsvifalaust að eyða án undantekninga ef það fólk sem stóð að þessum fósturvísum skildi að skiptum eða andlát bæri að garði. En á 153. löggjafarþingi ákvað þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra að setja þann anga málsins í stjórnarfrumvarp og var það samþykkt þannig að þessi ógeðfellda regla, eins og ég kalla hana, sem ég vildi fella út í mínum fyrri frumvörpum, hefur nú þegar verið felld úr lögunum og er því ekki lengur regla hér á Íslandi, sem betur fer.
Ég vil nefna það að ég var og er enn mjög þakklát þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórssyni, fyrir það. Eftir standa þá í því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir í fjórða sinn nokkur atriði, í rauninni tvö atriði sem ég tel rétt að við gerum breytingu á. Það hefur í grunninn að gera með það að auka frelsi og sjálfsákvörðunarrétt fólks í þessum aðstæðum með því að aftengja skyldu til sambúðar fyrir það fólk sem hyggst leita sér aðstoðar. Mér finnst rétt að hið opinbera þurfi ekki að hafa afskipti af því hvort það fólk er í sambúð eða gift. Við vitum að úti í lífinu, úti í samfélaginu, á börum bæjarins með öllu tilheyrandi o.s.frv., er hið opinbera blessunarlega ekki að skipta sér af því hverjir eignast barn saman. Ég sé því enga ástæðu til þess að hið opinbera þurfi að skipta sér af því ef fólk þarf aðstoð við eignast barn þótt það sé ekki í sambúð.
Ég myndi nú segja hér, herra forseti, að þetta sé kannski ekki jafn hrópandi óréttlátt og margt annað í löggjöfinni og hún hefur verið, t.d. sú breyting sem ég reifaði hér áðan sem heilbrigðisráðherra felldi út úr lögunum. En þetta er samt atriði sem við eigum að taka til okkar í nútímasamfélagi sem þróast í alls konar áttir. Við verðum einfaldlega að geta treyst fólki og verið með því í liði hvernig svo sem það kýs að haga sínu fjölskyldumynstri. Það er vel hægt að gera það án þess að hagsmunum eða lífi viðkomandi barns sé á einhvern hátt teflt í hættu eða tvísýnu eða að réttindi þess séu á einhvern hátt á reiki. Það er vel hægt að búa svo um hnútana og það er að sjálfsögðu mjög skýrt í frumvarpinu að ef fólk sem er ekki í sambúð eða hjónabandi vill eignast barn saman þá verður að sjálfsögðu að votta það allt saman með upplýstu samþykki og kvitta og stimpla í bak og fyrir af til þess bærum yfirvöldum, að sjálfsögðu, því að þar undir eru réttindi barns sem skipta mjög miklu máli.
Ég átta mig á því, herra forseti, að þessi nálgun hefur verið gagnrýnd og hefur verið mætt með ákveðnum áhyggjum og jafnvel fyrirvörum varðandi réttindi viðkomandi barna sem fæðast í líkum aðstæðum. Ég geri alls ekki lítið úr þeirri gagnrýni en ég leyfi mér samt að segja að það kom ekki á óvart. Í þau 30 ár sem þessi löggjöf hefur verið að þróast hefur hún bæði breyst mjög mikið í áranna rás og henni hafa alltaf fylgt mjög miklar áhyggjur. Öllum breytingum hafa alltaf fylgt miklar áhyggjur sem reyndust svo óþarfar og það er engin ástæða að mínu mati til þess að ætla að hið sama eigi ekki við nú. Í þessu samhengi má nefna að eins og við þekkjum máttu samkynhneigðir lengi vel ekki fara í tæknifrjóvgun, einstæðar mæður ekki heldur og systir tilvonandi móður mátti ekki gefa henni eggið sitt til aðstoðar. Öll þessi atriði höfðu það eitt sameiginlegt að fólk hafði áhyggjur af hagsmunum barnanna í þessum aðstæðum, að það þyrfti að banna þetta til að hlífa þeim við þessum aðstæðum. Svo bara þróast lífið, herra forseti, það breytist og viðmiðin okkar breytast og við sjáum að við þurftum kannski ekki að vera svona hrædd. Ég ætla almennt í lífinu, varðandi þennan málaflokk ekki síst, að trúa að það sé vel hægt að hugsa í lausnum og passa upp á það sem raunverulega skiptir máli. En að öðru leyti vil ég gefa fólki frelsi og traust til að bera ábyrgð á sínu lífi eins og það kýs helst.
Ég vil fá að nefna í þessu samhengi, herra forseti, og enda þennan kafla frumvarpsins á að segja að það er mín bjargfasta trú að það fólk sem vill svo gjarnan verða foreldrar, er til í að leggja á sig öll þau óþægindi, sársauka og kostnað við að fara í tæknifrjóvgun, gerir það aldrei að leik sínum og að þeir sem vilja svo afgerandi verða foreldrar verða góðir foreldrar.
Það er annar þáttur í þessu frumvarpi, forseti, sem hefur enn ekki verið tekinn út úr núgildandi löggjöf og mér þykir það mjög bagalegt og tel mjög mikilvægt að breyta því, þ.e. að í núgildandi löggjöf er mjög skýrt bann lagt við því að gefa fósturvísa, algjört bann við því að gefa fósturvísa. Fyrir mér er það hreint út sagt algerlega óskiljanlegt bann. Ég hef lesið mig í gegnum alla löggjöf síðustu áratuga og reynt að finna einhvers staðar rökstuðning fyrir því af hverju þetta bann er eins og það er, eins afgerandi og það er, og ég get með sanni sagt að ég finn ekki þau rök. Þegar verið er að búa til lög er ýmislegt sem endar því miður einhvern veginn þar og fólk veit ekkert endilega alltaf af hverju. Ég hef áhyggjur af því að við séum til í að láta það bara standa af því að það er búið að standa þarna svo lengi. Ég er því algjörlega ósammála. Ég get ekki séð ein einustu rök fyrir því að annars vegar megi gefa sæði og hins vegar megi gefa egg en að það megi ekki gefa sæði og egg þegar það er orðið að lífvænlegum fósturvísi. Ég endurtek: Ef fyrir þessu væri einhver rök að finna í núgildandi löggjöf væri sjálfsagt að skoða þau, en þau er einfaldlega ekki að finna.
Forseti. Þrátt fyrir að blessunarlega séu það ekki margir sem eru í þessari stöðu að þurfa að fá lífvænlegan fósturvísi í staðinn fyrir eingöngu kynfrumur, annars vegar egg og hins vegar sæði, er það hins vegar þannig að fyrir það fólk sem er í þeirri stöðu er það dýrmætara en gull að fá þá aðstoð. Það er auðvitað algerlega ólíðandi, finnst mér, að við séum með löggjöf sem hamlar því tækifæri, þeim valkosti fyrir það fólk og við getum ekki einu sinni sagt því af hverju það er. Mér finnst að löggjöf eigi ekki að vera þannig og ég tel einsýnt að kippa þessu í liðinn.
Í frumvarpinu er þetta mjög einföld breyting. Við breytum orðinu óheimill í heimil. Það þarf ekki að vera flóknara en það. Ég ákvað að skoða þetta í löndunum í kringum okkur, hvaða hátt þau hafa á. Ég tók stikkprufur frá Danmörku, Bretlandi og Spáni, eins og reifað er í greinargerð frumvarpsins og til að gera langa sögu mjög stutta heimila öll þessi lönd að fósturvísar séu gefnir og í þeirri löggjöf er ekki að finna eina einustu vangaveltu um að það sé eitthvað málum blandið. Þvert á móti. Þá má einnig geta þess að í þessum sömu löndum er heldur engin krafa um að fólk sé skráð í sambúð eða hjónaband ef það vill aðstoð við tæknifrjóvganir, eins og ég reifaði hér fyrr í máli mínu.
Forseti. Þetta frumvarp er svo sem ekki efnismeira en þessi tvö atriði í grunninn. Það er ekki stórvægilegt að umfangi. En fyrir það fólk sem núgildandi lög hamla tækifærum hjá er þetta stórvægilegt mál. Þetta er í grunninn, eins og ég segi, út frá þeirri hugmyndafræði að treysta fólki, gefa því valkost og frelsi á eigin forsendum út frá eigin sjálfsákvörðunarrétti. Við aðstoðum fólk og treystum því til að taka ákvarðanir fyrir sitt líf. Þetta frumvarp snýst um það.
Meðflutningsmenn frumvarpsins eru hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Diljá, Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Vilhjálmur Árnason. Ég veit að stuðningsmenn þess hér á þingi eru mun fleiri. Ég vænti að frumvarpið fái góða umfjöllun í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og vona svo að það nái fram að ganga og að ég þurfi ekki að flytja það hér í fimmta sinn. En ef ég þarf að flytja það í fimmta sinn mun ég gera það.