157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

4. mál
[15:29]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að koma hingað upp og byrja á því að þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir eljuna þegar kemur að því að mæla fyrir þessu máli í fjórða sinn og vil lýsa yfir einlægum stuðningi mínum við þetta mál og þau mál sem lúta að auknu frelsi fólks til að fara þessa leið við barneignir. Ég hef sjálf ákveðna reynslu á þessu sviði, þó með öðrum hætti. Það eru auðvitað bara svona líffræðilegir annmarkar sem réðu því að ég og konan mín fórum þá leið að geta tvö börn með gjafasæði og það var ferli sem var mjög upplýsandi og áhugavert að fara í gegnum. Það voru þarna alls konar annmarkar og tæknilegar hindranir sem maður botnaði ekkert í. Dæmi um það er pater est-reglan svokallaða sem segir það að börn eru feðruð sjálfkrafa við getnað en ég þurfti að skila sérstöku eyðublaði til að fá að verða foreldri. Ég má ekki vera móðir barnanna minna, ég er foreldri vegna þess að þú getur auðvitað ekki átt tvær mæður. Það eru alls konar svona atriði sem maður rak sig á í þessu ferli, einhverjar forræðishyggjuhindranir sem í raun og veru íþyngja fólki enn frekar í erfiðu ferli. Mig langaði því fyrst og fremst að koma og þakka fyrir þetta góða mál. Ég er ekki með einhverja skýra spurningu, svo að ég viðurkenni það nú bara. Mig langaði bara að koma upp og þakka fyrir umræðu um þetta mál vegna þess að ég held að hún sé nauðsynleg og mikilvæg. Fjölskylduform og það hvernig börnin okkar verða til er bara alls konar og það er bara frábært.