157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

4. mál
[15:32]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Það er gott að vita, eins og mig grunaði og ég vissi, að bandamenn þessa máls eru fleiri en eingöngu þeir sem eru skráðir á málið og ég hef fundið fyrir því í gegnum öll þessi ár. Það er mjög mikilvægt. Ég held að það sé einhvern veginn svo hollt ferli, eins og hv. þingmaður var að reifa, að labba á þessa veggi í rauninni og eins og hún þá get ég upplýst að ég þekki líka sjálf þetta ferli af eigin raun eftir að hafa farið nokkrum sinnum í gegnum það. Þrátt fyrir að kannski engar af þeim hindrunum vörðuðu mig persónulega þá las ég gegnum löggjöf þar sem voru bara svo mörg atriði sem manni fannst bara úrelt og ekki síst óþörf. Margt sem er kannski úrelt — oft er hægt að finna einhver rök fyrir því sem skipta einhverju máli en það er aðeins önnur umræða. En það er mjög skrýtið þegar ekki er hægt að finna nein rök fyrir því af hverju verið er að gera fólki í þessum ofboðslega erfiðu aðstæðum þetta enn þá erfiðara fyrir, án ástæðna. Maður sér það, ég hef nú flutt þetta mál nokkrum sinnum, þegar maður reifar söguna af fyrstu löggjöfinni að það var auðvitað risastórt og mjög þakklátt skref að leyfa yfirhöfuð tæknifrjóvgun. Það var ekkert auðvelt og forgöngumenn þess tíma eiga þakkir skildar fyrir það. En á þeim tímum máttu einstæðar mæður ekki taka þátt, samkynhneigðir máttu ekki taka þátt, fjölskyldumeðlimir máttu ekki gefa kynfrumur o.s.frv. Þetta eru dæmi sem hjálpa okkur til að horfa alltaf á löggjöfina eins og hún er hverju sinni gagnrýnum augum af því að við vitum, við finnum það á eigin skinni, að sömu áhyggjur voru uppi fyrir einhverjum árum síðan og við vitum að þær voru óþarfar. Ég vona að sú tilfinning muni fylgja vinnunni áfram á þingi.