157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

4. mál
[15:34]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er þetta með löggjöfina og í hvaða anda hún er skrifuð hverju sinni sem er áhugavert og hverjir það eru sem skrifuðu löggjöfina. Þar kemur fram sú birtingarmynd hvað það er mikilvægt að í þessu húsi séu ólíkir reynsluheimar og raddir ólíkra hópa sem þekkja til og hafa kannski rekist á hina ýmsu veggi. Við miðlum þeirri reynslu í okkar vinnu hér eins og annars staðar.

Það er annað hugðarefni sem ég væri til í að fá að reifa í mínu síðara andsvari, það er þessi lenska með þingmannamálin. Nú erum við að ræða mál sem er almennt séð, held ég, gott og ég held að það sé bara þokkalegur stuðningur við það. Þetta er bara lagatæknileg breyting sem ég held að mörg okkar styðjum. Það er verið að flytja þetta mál í fjórða skipti, í gær vorum við í umræðu hér um mjög mikilvægt mál sem tengist forvörnum vegna sjálfsskaða og óhappaeitrana, það var verið að flytja það í þriðja eða fjórða sinn. Við erum með mál sem eru flutt aftur og aftur og eru almennt góð mál. Ég hef séð það í gegnum tíðina að þetta eru einmitt málin sem daga einhvern veginn alltaf uppi í þinglokasamningum og í þessum kúltúr sem er í þessu húsi. Það eru málefni ráðherranna sem ganga fyrir og þingmannamálin, sem oft eru bara svo góð og mikilvæg fyrir samfélagið, daga uppi. Það er ekki nema maður fái ráðherrann til að taka upp málið að hægt er að koma því þannig í gegn. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir er með töluvert meiri þingreynslu en ég og ég væri til í að fá að heyra þessi sjónarmið um þingmannamálin almennt. Hvers vegna telur þingmaðurinn að það sé orðið að einhvers konar óskrifaðri reglu að þingmannamál mæta afgangi? Í mínum huga er það þannig að ef mál eru góð og fá umfjöllun í nefndum og eru samfélaginu til góða þá á ekki að skipta máli hvaðan þau koma. Við erum öll þingmenn.