barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða fyrirspurn í sínu seinna andsvari. Ég tel að hér hafi hún verið að tæpa á mjög mikilvægum vangaveltum um þrígreiningu ríkisvaldsins sem ég hef haft mikinn áhuga á lengi að sé meira rætt hér og horft meira gagnrýnum augum á samspil sérstaklega framkvæmdarvalds og löggjafarvalds. Eins og hún kom inn á þá er það alveg hárrétt að einhverra hluta vegna hafa þingmannamálin orðið að, ég held ég sé að hafa rétt eftir úr félagsfræðinni, einhvers konar menningarkima í þessu samfélagi okkar á Alþingi. Ég hef ekki verið svo lengi á þingi að ég kunni sögulegar útskýringar á því en alla vega þau ár sem ég hef verið hér þá hefur þetta alltaf verið þannig. Ég myndi giska á að það sé ekkert einhverjum einum að kenna, einni ríkisstjórn eða flokki eða neitt slíkt, heldur einhvers konar kúltúr sem hefur verið, að ég held, ég þori ekki að fullyrða það, í einhvern tíma. En þetta er að mínu viti mjög vond þróun og stenst ekki stjórnarskrá í rauninni því að löggjafinn er í þessum sal, hér eru 63 aðilar sem eru þjóðkjörnir með það hlutverk að búa til lögin í landinu. Við vitum að þrátt fyrir að einstaka flokkar og þingmenn ákveði að búa til meiri hluta hverju sinni þá er okkar kerfi ekki hugsað þannig að þar með sé það alræðisvald og hinir hafi ekkert vald. Það er ekki hugsað þannig. Oft geta verið skiptar skoðanir um mál innan viðkomandi ríkisstjórnar þrátt fyrir að sé hægt að finna annan meiri hluta hjá þeim þingmönnum sem eru með lýðræðislegt umboð til þess að hafa skoðanir á því og eru jafnvel með meiri hluta fyrir því, burt séð frá því hvernig framkvæmdarvaldið kýs að haga sinni stjórn hverju sinni. Einhverra hluta vegna hefur þessu ekki bara verið grautað saman heldur virt að vettugi að mínu viti. Framkvæmdarvaldið hefur í rauninni stýrt því hvaða mál fara í gegn. Ég tel að það sé brot á stjórnarskrá og bara fagna því að fulltrúi stjórnarmeirihlutans skuli impra á þessu því að ég held að við ættum að gera bragarbót á.