157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

4. mál
[15:39]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka flutningsmanni, hv. þm. Hildi Sverrisdóttur, fyrir þetta lagafrumvarp. Þær tillögur að breytingum sem þingmaðurinn gerir í þessu lagafrumvarpi eru af hinu góða. Ég tel að við getum gert betur í þessum málaflokki. Heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga er eitt af þeim kerfum sem sérhver landsmaður nýtir sér einhvern tímann á ævinni með einum eða öðrum hætti. Þess vegna þarf þjónusta þess að vera á breiðum grunni eins og framast er unnt. Þjóðin er einnig afar lánsöm að eiga þess kost að þiggja þjónustuna úr höndum færustu sérfræðinga og vel þjálfaðs starfsfólks.

Að eignast eða eignast ekki börn er spurning sem flestir standa frammi fyrir einhvern tímann á ævinni. Það reynist því miður samt allnokkrum fjölda fólks stundum erfiðara að eignast börnin en að svara þessari spurningu. Þeir einstaklingar eða pör sem eiga við ófrjósemi að stríða eru meðal þeirra sem þiggja þjónustu frá heilbrigðiskerfinu. Skilgreining á ófrjósemi er þegar par hefur reynt að eignast barn í eitt ár án árangurs. Talið er að 15–20% para á barneignaraldri glími við ófrjósemi einhvern tímann á lífsleiðinni. Ófrjósemi er fyrst og fremst líffræðilegt vandamál enda þótt sálrænir þættir hafi svo sannarlega áhrif. Aðeins þeir sem hafa verið og eru í þeirri stöðu að eiga við ófrjósemi að stríða og hafa reynt lengi að eignast barn með aðstoð tæknifrjóvgunar vita hversu mikið álag og áhrif það hefur á tilfinningalega og líkamlega líðan. Ef meðferðin skilar ekki árangri eykst álagið oft enn frekar þegar tilfinningar eins og sorg, vonleysi og kvíði gera vart við sig. Hversu mikið erum við sem samfélag tilbúin að hjálpa þessum hópi og í hverju gæti hjálpin einna helst falist? Sú hjálp sem mun helst nýtast þeim sem eiga við ófrjósemi að stríða hlýtur fyrst og fremst að lúta að þjónustunni sem þeim stendur til boða eða kann að standa til boða í framtíðinni. Tæknifrjóvganir eru dýrar, oft er fleiri en einnar meðferðar þörf.

Ófrjósemi virðist vera vaxandi vandamál. Ástæða þess að um er að ræða vaxandi vandamál er hvorki einhlít né einföld. Mörgum finnst auðvelt að setja sig í spor þeirra sem eiga við þennan vanda að stríða, jafnvel þótt þeir hafi ekki sjálfir persónulega reynslu af honum. Ég er þeirrar skoðunar að við getum gert mun betur í þessum málaflokki þannig að draumur allra þeirra sem langar til að eignast börn en eiga erfitt með það geti ræst. Líkamlegt álag er það mikið og við getum bara strax hugsað alla þessa hormónakokteila sem hafa mikil áhrif, bæði á líkama og sál. Svo er það auðvitað fjárhagslega hliðin. Hún er kannski það stærsta og mesta sem við hér á þingi getum reynt að laga til þess að liðka fyrir hjá þessum hópi þannig að hann eigi auðveldara með að nota þjónustuna án tillits til efnahags.

Það er val að eignast barn eða ekki, myndu margir segja. Ef viðkomandi þarf aðstoð og er ekki fjársterkur er náttúrlega ekki mikið um neitt val að ræða. Þannig er staðan í dag og við þurfum einhvern veginn að koma því þannig fyrir að allir hafi raunverulegt val í þessum efnum. Ég tel að við getum gert betur. Þetta lagafrumvarp er liður í því og svo má jafnvel bara skoða að gera enn þá betur og styrkja þennan málaflokk.

Ég þekki þessi mál ekki hvað síst í gegnum starf mitt sem sálfræðingur til mjög margra ára. Það eru ófá skiptin sem fólk hefur leitað til sálfræðinga sem eru að standa í þessum meðferðum. Ég þekki þess vegna afar vel hversu mikið álag, andlegt álag, þetta hefur í för með sér á sambönd og bara allt í umhverfi einstaklingsins sem er kannski að endurtaka meðferð ítrekað. Mér þykir því mjög vænt um það ef við hér á þingi og þingheimur getum sameinast um að stíga skref í þá átt að ryðja úr vegi hindrunum og óþarfa vegatálmum fyrir þennan hóp okkar fólks hér á landi. Takk fyrir.