barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.
Herra forseti. Ég vildi koma hingað upp og þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu hér. Ég heyri ekki betur en að hv. þingmaður styðji frumvarpið með einhverjum fyrirvara áður en málið er tekið til skoðunar í nefndinni, að sjálfsögðu, en það er alla vega jákvæð afstaða til málsins hérna á fyrstu stigum þess. Það skiptir gríðarlega miklu máli þar sem hv. þingmaður er formaður hv. velferðarnefndar sem mun fá málið til sín. Ég vildi koma hingað upp þar sem ég fékk rangar upplýsingar eins og gengur. Ég taldi að málið færi til allsherjar- og menntamálanefndar og þess vegna tók ég það fram í minni framsögu, en það fer til hv. velferðarnefndar, svo það sé nú sagt skýrt. Þar sem hv. þingmaður er þar formaður þá gleður það mig og ég veit að þeir fylgjast mikið með þessum málum, allir þessir fjölmörgu aðilar sem eiga ofboðslega mikið undir því að við höfum þessar reglur aðeins manneskjulegri og aðeins meira til aðstoðar þeim sem eru í þessum vandræðum.
Ég vildi kannski nefna við hv. þingmann og formann hv. velferðarnefndar að þetta er eitt atriði, að liðka aðeins um frelsið og sérstaklega varðandi það að gefa fósturvísi, eins og ég reifaði í minni ræðu. Svo er annað; ég hef lagt fram, og mun leggja fram aftur, mál er varðar greiðsluþátttökuna. Við hæstv. heilbrigðisráðherra unnum saman að því núna á síðasta þingi að greiðsluþátttakan yrði aukin af hálfu ríkisins. Þar má þó gera enn betur og jafna út. Það eru ákveðnir þættir í heilbrigðiskerfinu okkar sem eru niðurgreiddir að fullu sem að mínu viti ætti ekki að gera. Frekar ætti að nota það fjármagn í þessa aðstoð sem er svo ofboðslega brýn. Ég vildi fyrst upplýsa hv. þingmann og formann nefndarinnar um að það mál er væntanlegt öðru sinni og fer þá væntanlega líka fyrir hv. velferðarnefnd. Ég fagna því að heyra svo jákvæðan tón frá formanninum í garð þessara mála.