157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

4. mál
[15:46]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar orð. Málið mun koma til velferðarnefndar og þar munum við taka þétt og vel utan um það, alveg klárlega, eins og öll önnur góð mál, sama hvaðan þau koma. Þetta hefur verið mitt baráttumál í gegnum tíðina. Ég hef skrifað um það greinar og einu sinni var sú tíð að ég stýrði þáttum á sjónvarps- og útvarpsstöðinni ÍNN. Þættirnir hétu Í nærveru sálar. Þar tók ég m.a. viðtal við samtökin Tilveru og fékk til mín frábært fólk til að ræða þessi mál. Þetta hefur mjög lengi verið eitt af þeim málum sem mér finnst við þurfa að laga og nú er tækifæri til þess. Ég fagna því að sjá fleiri góð frumvörp eða þingsályktunartillögur sem munu verða til þess að létta á hjá fólki sem er í þessari baráttu.