157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

barnalög og tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

4. mál
[15:48]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Ég ætlaði að koma hér örstutt þar sem hún minnist réttilega á samtökin Tilveru sem hafa unnið ótrúlega óeigingjarnt og mikilvægt starf varðandi þessa baráttu alla. Ég ætla að fá að segja skýrt að ég vænti þess að þau muni skila inn umsögn og ég vona að þau verði kölluð fyrir nefndina, ekki síst til þess að heyra að það eru eflaust einhverjir aðrir angar í þessu umhverfi öllu sem við ættum að huga að. Ég tala nú ekki um ef hægt er að finna einhvern flöt á því að skrifa það inn í þetta frumvarp, eða hvernig svo sem það er, til að flýta fyrir. En ég vil alla vega hafa sagt það skýrt við formann nefndarinnar að ég myndi fagna öllum þeim breytingum og vangaveltum frá aðilum eins og Tilveru sem væru til þess fallnar að bæta þetta umhverfi. Það þekkir enginn hér á landi þessa baráttu betur og hvað hún getur verið erfið en þau. Annað var það nú ekki.