bætur vegna tvísköttunar lífeyrisgreiðslna.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir góða framsögu hér og fyrir að vekja athygli á þessu aldeilis ágæta máli. Ég vil nefna það hér að ég er meðflutningsmaður á því og þetta er í mínum huga réttlætismál. Það er nú þannig að almennir launþegar hafa yfirleitt þurft að sæta skattheimtu á sín laun og má með réttu halda því fram að það sé hreinlega nóg að skattleggja í eitt skipti og sérstaklega hjá þeim sem eru í hærri tekjuþrepunum. En ég held að við getum bara sagt með sanni hér að þetta sé réttlætismál og það er auðvitað ekkert annað en sanngjarnt að komið verði til móts við þá einstaklinga sem verða fyrir því að tekjur þeirra eru skattlagðar í tvígang og að þeim verði einfaldlega bætt það tjón sem þeir urðu fyrir með þessum tvöfalda tekjuskatti. Þetta er einfalt mál og þetta ætti ekki að vera verulega útgjaldamikið hjá ríkissjóði þannig að ég held að þetta ætti að geta fengið góða samstöðu í þinginu. Tökum okkur saman um að láta þetta góða mál verða að veruleika.