157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

vegalög.

66. mál
[16:43]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir svörin. Ástæðan fyrir því að ég var að nefna þetta með kostnaðinn var auðvitað að ég var að kanna væntingar þingmannsins til þess hvort það yrðu mögulega gerðar breytingar á gjaldskrám ferja, sérstaklega Herjólfs, hvort að hann væri búinn að mynda sér einhverja skoðun á því hvað það ættu að vera margar ferðir jafnvel á sólarhring, sem væri þá fjölgun frá því sem verið hefur.

Í 22. gr. vegalaga finnst mér koma ágætlega skýrt fram að í samgönguáætlun er heimilt að ákveða fjárveitingu vegna kostnaðar við ferjur til flutnings á fólki og bifreiðum yfir sund og firði. Þar er einnig talað um að það sé heimilt að ákveða fjárveitingu til greiðslu hluta kostnaðar við ferjur sem eru mikilvægar fyrir ferðaþjónustuna en einnig er heimilt að greiða hluta kostnaðar við bryggjur. Það er auðvitað hluti af þeim kostnaði sem fellur til, það eru ekki bara skipin, það er að halda þeim höfnum í sæmilegu viðhaldi sem taka á móti ferjunum. Svo er það þannig að í samgönguáætlun, það er talað um það í vegalögum, skulu ferjuleiðir taldar upp og gerð grein fyrir rekstrar- og stofnframlögum til einstakra ferja. Þar ætti því að birtast svigrúmið sem ferjur hafa í dag til að halda úti reglulegum ferðum til viðkomandi eyja. Það verður þá kannski sameiginlegt verkefni okkar að passa upp á það að nægilega verði hugað að því að það verði til fjármunir til að reka sæmilega ferjustarfsemi. Líka varðandi þetta sem ég nefndi áðan; það skiptir auðvitað máli að þær ferjur sem við notum séu brúklegar, að það sé ekki verið að nota allt of gömul skip og það séu skip sem geta leyst af hólmi skip á fjölförnustu leiðunum.