vegalög.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta langt. Ég vildi koma hérna upp og þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að leggja fram þetta frumvarp og fyrir sína góðu framsögu. Ég hefði eflaust glaður viljað vera meðflutningsmaður á þessu máli. Ég ætla að leyfa mér að drepa niður í umsögn Akureyrarbæjar sem barst nefndinni þegar málið var lagt fram á seinasta þingi. Þar stendur, með leyfi forseta:
„Það er í raun óskiljanlegt að ferjuleiðir hafi ekki verið skilgreindar sérstaklega í lögum sem þjóðvegur og þetta frumvarp því góð breyting sem kemur íbúum og sveitarfélögum þessara eyja til góða.“
Ég tek heils hugar undir þetta. Þetta er eitt af þeim málum sem ég hélt í sakleysi mínu að væri nú þegar vel skilgreint í lögum, ég hefði haldið það. Þetta minnir mig á umræðuna sem átti sér stað hér áðan um frumvarp hv. þm. Sigmars Guðmundssonar um sjálfskaparvíti þar sem ég bjóst bara við því að lögin væru öðruvísi en þau í raun eru. En ég er nýr hér og maður er alltaf að læra að raunveruleikinn er ekki alltaf eins og maður bjóst við, þannig að þetta er mjög gott mál.
Ég ætla þó að leyfa mér að taka undir það sem fram kemur í umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, þá er ég að tala um umsagnir sem bárust þegar þetta mál var síðast lagt fram en þar er sagt, með leyfi forseta:
„SSA vekur í þessu sambandi sérstaka athygli á stöðu þeirra byggðalaga sem ekki eru umlukin sjó heldur er för landleiðina skert hluta úr ári þar sem vetrarþjónustu er ekki sinnt. Á Austurlandi háttar þannig til að engin vetrarþjónusta er til Mjóafjarðar yfir Mjóafjarðarheiði og þurfa íbúar því yfir veturinn að treysta á þjónustu ferju sem siglir á milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar.“
Í frumvarpinu sjálfu er orðalagið þannig, með leyfi forseta:
„Til þjóðferjuleiða teljast leiðir þar sem ferja kemur í stað vegasambands um stofnveg og tengir byggðir landsins sem umluktar eru sjó við grunnkerfi samgangna á meginlandinu.“
Ég beini því til nefndarinnar að skoða hvort það megi breyta þessu orðalagi þannig að við séum þá að skoða bæði eyjar en einnig aðra staði, eins og t.d. Mjóafjörð, þar sem vegurinn er ófær mestallan hluta ársins. Ég styð þetta mál heils hugar. Ég beini því þó til nefndarinnar að taka með Mjóafjörð til skoðunar.
Það var góð umræða áðan sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir og hv. þm. María Rut Kristinsdóttir áttu hérna um þingmannamálin almennt. Það eru búin að vera nokkur góð þingmannamál til umræðu sem virðast njóta nokkuð þverpólitísks stuðnings. Þessir tveir hv. þingmenn voru að velta því upp hvernig það hefur skapast sú hefð að þessi þingmál mæti alltaf afgangi. Ég vil taka undir það sem kom fram í þeirra umræðu um að taka það til skoðunar sem þing að setja þau mál sem þverpólitísk samstaða er um ofar á dagskrá sem en ekki að láta þau alltaf mæta afgangi. En, eins og ég segi, ég styð þetta mál og hef lokið máli mínu.