157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

vegalög.

66. mál
[16:52]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Hér erum við að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á vegalögum, þjóðferjuleiðir. Ég verð að segja að þetta er afskaplega áhugavert mál. Það er búið að flytja það nokkrum sinnum en það hefur ekki, eins og oft er um þingmannamál, fengið fulla þinglega meðferð. Það hefur verið tekið til umræðu í þingsal, vísað til nefndar og kallað eftir umsögnum en nefndir hafa ekki afgreitt það frá sér svo ég viti til. Það er líka áhugaverð umræða sem hefur farið fram í dag og áður um þingmannamál og tíma til að vinna þau í nefndum. Við höfum verið að skoða það í hv. allsherjar- og menntamálanefnd að reyna að haga vinnunni þannig að það séu meiri líkur á því að við komum fleiri þingmannamálum í beina afgreiðslu þar. Vonandi gengur það upp, alla vega virðist samstarfið um það fara vel af stað og gengur vel hjá okkur. Ég vona bara að þetta frumvarp nái fram að ganga með þeim hætti að nefndin taki það til efnislegrar umfjöllunar. Það eru auðvitað vangaveltur varðandi kostnaðinn og hvers konar beinar jákvæðar afleiðingar af þessu frumvarpi verða en ég held að við séum a.m.k. að leggja af stað á réttri leið og vil bara þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að leggja málið fram, ég held að þetta sé a.m.k. í þriðja skiptið sem hv. þingmaður leggur það fram. Ég er ekki meðflutningsmaður á því en ég styð a.m.k. að málið fái góða vinnslu, það fer væntanlega til hv. umhverfis- og samgöngunefndar, og það verði tími þar til að vinna málið vel.

Þegar maður skoðar umsagnir þeirra sveitarfélaga sem þetta snertir hvað mest og jafnvel fyrirtækja sem tengja mikið við það að þurfa að nota þessar ferjur fyrir sína starfsemi þá er það auðvitað gríðarlega mikið hagsmunamál að þessir hlutir séu á þann veg sem best verður á kosið í okkar umhverfi. Við þingmenn Suðurkjördæmis erum nýlega búin að vera á ferð um Suðurland þar sem afleysingaferjan Baldur var að sigla fyrir Herjólf og síðan kom reyndar Herjólfur inn í vikunni sem við vorum þarna líka á ferðinni. Við sáum bara raunveruleika Vestmannaeyinga mjög klárt þessa daga í þar síðustu viku þar sem lítið var hægt að sigla og þetta var einhvern veginn allt í lausu lofti. Þetta hefur auðvitað gríðarleg áhrif á ekki bara fólkið sem býr á svæðinu heldur allan rekstur fyrirtækja. Sama gildir um aðra staði á landinu sem eru a.m.k. stóran hluta af árinu mjög háðir ferjusiglingum.

Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni aftur fyrir að koma með þetta fram og, eins og ég segi, ég vona að málið verði tekið fyrir í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Það er alveg ljóst að það er heilmikið fóður í þeim umsögnum sem bárust um þetta síðast og vonandi verður jafn vel tekið í þetta hjá þeim sem skila umsögnum núna þannig að hægt verði að vinna málið vel og að þetta verði kannski bara gott dæmi um gott þingmannamál sem fái brautargengi hjá nefndinni í vetur.