vegalög.
Frú forseti. Ég verð í byrjun að þakka öllum þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið til máls í umræðu um þetta mál, þ.e. hv. þm. Ingvari Þóroddssyni og hv. þm. Víði Reynissyni og einnig þeim hv. þingmönnum Ólafi Adolfssyni og Sigurjóni Þórðarsyni sem komu í andsvör og lögðu ýmislegt til málanna. Þetta hefur því verið mjög fróðleg umræða að mörgu leyti.
Nokkrar ábendingar, þetta er í sjötta sinn sem þetta mál er lagt fram. Öll þingin hefur það reyndar ekki alltaf farið til nefnda en það hefur a.m.k. farið til nefnda fjórum sinnum, á fyrsta þinginu, 149., 150., 151. og svo nú í vor, 156. þingi, og fengið umsagnir víða að. Það eru fleiri aðilar heldur en fjórir sem lögðu inn umsögn síðast. Það eru til fleiri umsagnir, eldri umsagnir úr Breiðafirðinum og einhvers staðar annars staðar frá, þannig að það má alveg skoða þetta. Það er alveg rétt sem hv. þm. Ingvar Þóroddsson benti á að umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi bendir á þetta. Þetta er spurning um það að laga eitthvað orðalag í 22. gr. vegalaga til að þessir staðir, sem eru reyndar ekki eyjur heldur einangraðir staðir sem þurfa að nota ferjur af því vegasamband rofnar, verði ekki út undan. Það þarf kannski eitthvað að laga orðalagið í þeirri grein í nefndinni í vinnunni til að þeir lendi ekki þarna á milli stafs og hurðar eða skips og bryggju eða hvernig sem menn vilja orða það.
Einnig vil ég fara nokkrum orðum um þessi mál, þessi góðu mál sem mönnum er tíðrætt um sérstaklega í dag, þingmannamál sem flestir virðast vera sammála um hér í ræðustólnum alla vega og fá víðtækan stuðning meðal þingmanna en eru ekki í systeminu eða kerfinu, svo ég noti íslenskt orð yfir þetta. Það er t.d. möguleiki á því, frú forseti, ef það er eitthvað sérstaklega gott mál að mati mjög margra og allir flokkar svona sirka sérstaklega ánægðir með viðkomandi mál, að útbúa einhvers konar milliþinganefnd eða milliþingahóp fólks úr öllum flokkum sem tækju þessi ágætu mál, sem þurfa kannski ekki að vera mjög mörg, og leggja þau svo fram á næsta þingi í nafni nefndanna. Nefndin sjálf leggi fram tvö til þrjú mál sem allir virðast vera sammála um, er sífellt verið að leggja fram frá einhverjum þingmanni eða þingmönnum og aldrei fá afgreiðslu en allir virðast vera sammála um. Það er hugsanleg lausn sem ég er að benda á. Þetta er gamalt vandamál og ég ætla alls ekki að halda því fram að ég hafi einhverja patentlausn á þessu en þetta má kannski hugsa einhvern veginn svona. Nefndirnar sjá málin, þingmennirnir í nefndunum vita hvað er gott mál og allir virðast sammála um en alltaf deyr málið. En nefndirnar gætu kannski bara orðið sammála um í samtali við framsögumann og nefndin gæti þá lagt það fram. Þá myndi þetta kannski líta pínulítið öðruvísi gagnvart stjórn og stjórnarandstöðu ef nefndin myndi sjálf leggja fram málið og þannig yrðu til kannski fimm eða tíu mál í byrjun þings. Þetta er uppástunga til að við gætum brotið þetta glerþak sem við erum sífellt að kvarta yfir með einhvers konar svona móti. Að láta þetta lifa á milli þinga er hugmynd sem virðist aldrei ætla að verða að veruleika þannig að þetta er bara önnur hugmynd, hvort við getum brotið þetta á einhvern annan hátt upp. Ég er alls ekki hér, frú forseti, að meina að þetta sé hægt að gera í stórum stíl með 40 mál. Ég er að tala bara um innan við tíu mál. Þetta eru átta nefndir, þannig að kannski eitt, tvö mál í hverri nefnd. Við gætum kannski gert það.
Varðandi þetta mál, breytingu á vegunum og ferjurnar, þá finnst mér það, frú forseti, löngu tímabært, eins og hefur komið fram í umræðunni, að ferjusiglingar við Ísland fái aukna athygli. Þetta frumvarp miðar að því. Það miðar að því að það verði gerðar einhvers konar áætlanir um ferjusiglingarnar. Það verði einhvers konar plan um tíðni ferða, gæði ferjanna, hvaða þjónustu er boðið upp á, hvenær ferjurnar verði endurnýjaðar og hver kostnaðurinn við ferjurnar verði fyrir íbúana. Það verði áætlun um það og fyrirsjáanleiki fyrir fólk á þessum eyjum, þetta eru fjórar eyjar núna, fyrirsjáanleiki fyrir íbúana og flutningsaðilana, hvernig þetta á sér stað og hver kostnaðurinn verður, þannig að þetta verði bara eins og hver annar þjóðvegur. Ef þjóðvegurinn fer í sundur einhvers staðar þá eru mættar þar gröfur og vörubílar sama dag eða daginn eftir til að fylla upp í holurnar og gera hann hæfan til aksturs mjög fljótlega. Þetta á ekki við um ferjurnar eins og við höfum margoft séð og orðið vitni að. Þegar ferja bilar eða fer í slipp þá er einhver fenginn til að taka við sem kannski alls ekki hentar veðurlagi og sjólagi á viðkomandi stað. Hvað gerist svo á hinum staðnum þar sem ferjan er tekin? Þar fellur bara allt niður þar á meðan. Það þarf einhvers konar áætlun í þetta.
Að þessu sögðu, frú forseti, þá legg ég til að málið fái og vonast til að málið fái góða umræðu og meðferð í hv. umhverfis- og samgöngunefnd.