Framlagning stjórnarmála.
Frú forseti. Það er orðið ansi áberandi að verkstjórnin, ríkisstjórnin, er ekki að ná að koma stjórnarmálum til þingsins. Dagskrá þingfunda undanfarna daga og vikur hefur verið ansi þunn og síðasta vika var skýrt dæmi um það. Þar er verið að fylla upp í dagskrá þingfunda með sérstökum umræðum og þingmannamálum. Það er alveg augljóst að þetta er ekki merki um öfluga verkstjórn en maður veltir því eðlilega fyrir sér hvað veldur. Eru stjórnarmálin öll föst inni í stjórnarflokkunum?
Frú forseti. Það sem vekur einnig áhyggjur eru áhrifin af seinaganginum á menntakerfið okkar. Það er verið að fresta máli sem tengist fríum námsgögnum, máli sem þegar var tilbúið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd síðastliðið vor. Frumvarp um skólaþjónustu mun ekki koma hingað inn fyrr en eftir ár. Það má kannski spyrja hvort stórátakinu í menntamálum hafi hreinlega verið slegið á frest. Það virðist eins og mál séu að dragast á langinn og það er líka verið að fresta mikilvægum þjóðþrifamálum. Ég vona, frú forseti, að þessi tilfinning hjá okkur sé ekki rétt (Forseti hringir.) og ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til góðra verka og bind vonir við að hlutirnir leysist hjá þeim svo við förum að sjá fleiri stjórnarmál hér á dagskrá þingfunda.