Framlagning stjórnarmála.
Virðulegur forseti. Ég sakna nú ekkert sérstaklega mála frá þessari ríkisstjórn. Ég er ekkert sannfærð um að það séu endilega góð mál sem koma frá ríkisstjórninni. En, virðulegur forseti, ég vil engu að síður beina því til hæstv. forseta Alþingis að huga að verklagi þingsins. Við sáum það á síðasta þingi að komið var inn með risastór mál, illa ígrunduð, með ófullnægjandi fylgigögnum með útreikningum, eftir að fresturinn leið og það var ætlast til þess að þingið myndi afgreiða það. Slíkt getum við ekki gert aftur þannig að ég beini því til hæstv. forseta að ef ríkisstjórnin ætlar að fá einhver mál afgreidd í gegnum þetta þing, þá komi þau tímanlega þannig að þingið geti unnið þau vel og vandlega. Ekki er vanþörf á. Annars er ég alveg sátt við það að hér séu þingmál og mál til umræðu enda mjög mörg góð mál sem koma frá mér og mínum flokki en ég treysti því líka að þau fái afgreiðslu í nefnd og afgreiðslu í þessum góða sal.