Framlagning stjórnarmála.
Frú forseti. Það er undarlegt að stjórnarandstaðan komi nú upp og kvarti undan því að það séu of fá mál sem komi hér til afgreiðslu því að fyrir ekki svo mörgum mánuðum á þinginu var kvartað mjög hátt og illa undan því að það væru of mörg mál og of stór mál. Það kemur jafnvel núna fram hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að hún saknaði ekki þeirra tíma þegar það komu mörg mál þannig að það er erfitt að gera stjórnarandstöðunni til hæfis. En mér finnst einmitt ríkisstjórnin bara vinna vel. Málin koma hingað jafnt og þétt, góð mál, vel rökstudd, þannig að ég vona að stjórnarandstaðan sýni okkur í ríkisstjórnarflokkunum biðlund og vinni síðan jafnt og þétt að því að færa þessi mál örugglega og málefnalega inn í nefndir þingsins.