Framlagning stjórnarmála.
Frú forseti. Ég kem hér upp sem starfandi þingflokksformaður Viðreisnar til þess kannski að róa fólk og upplýsa um að það er ekkert mál fast í þingflokkum. Við eigum vonandi von á málum á morgun sem við afgreiðum og tökum til umfjöllunar en það hefur engin stífla myndast í neinum þingflokki með nein þingmál svo það sé upplýst. Það gengur bara vel að koma málunum inn. Miðað við þingmálaskrá þá sýnist mér að við séum sirka á plani. Ég fagna annars umræðu um eftirspurn eftir fleiri málum frá okkur. Ég held að hv. þingmenn þurfi engu að kvíða hvað það varðar. Hér er verið að reyna að búa til einhverja atburðarás, einhverja tilfinningu um að hér séu hlutir ekki samkvæmt einhverju plani og ég upplýsi hér með að það er bara ekki þannig.