157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

Vextir og verðbólga.

[13:44]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Hér segir forsætisráðherra að búið sé að stíga mjög stór skref. Ég get ekki betur séð en að hér hafi verið stigin hænuskref. Þegar talað er um að vextir hafi lækkað þá hófst vaxtalækkunarferlið ekki vegna aðgerða núverandi ríkisstjórnar. Vaxtalækkunarferlið hófst vegna aðgerða fyrri ríkisstjórnar og það hefur stöðvast núna.

En ég vil beina sjónum mínum núna að frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um almannatryggingar sem er á dagskrá síðar í dag. Frumvarpið hefur verið harðlega gagnrýnt, svo ekki sé meira sagt, m.a. af fjármálaráði, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands og meira að segja sjálft fjármálaráðuneytið hefur varað við að fimmtungur ríkisútgjalda muni færast á sjálfstýringu. Nú er hæstv. forsætisráðherra reynslumikill hagfræðingur og hún hlýtur að sjá afleiðingarnar sem af þessu frumvarpi geta orðið og hún ber líka pólitíska ábyrgð á stjórnarsamstarfi þar sem þetta er helsta mál og má segja eiginlega eina mál Flokks fólksins. Tekur forsætisráðherrann undir þessa faglegu gagnrýni (Forseti hringir.) og er hún reiðubúin að endurskoða þetta frumvarp í þágu stöðugleika og sjálfbærni eða styður hún það óbreytt þrátt fyrir varnaðarorð sérfræðinga (Forseti hringir.) og eigin markmið um lægra vaxtastig?