157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

Efling tengsla Íslands og Bandaríkjanna.

[13:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég efast ekki um að hæstv. forsætisráðherra taki undir með mér og fjölmörgum þjóðarleiðtogum og fagni friðarsamkomulagi í Palestínu og vonist til þess að þetta muni leiða til áframhaldandi uppbyggingar og friðar í Mið-Austurlöndum og að það fólk sem hefur flúið Palestínulönd geti snúið aftur til síns heima og tekið þátt í uppbyggingu þar. En það var óneitanlega áhugavert að sjá hversu miklu máli aðkoma Bandaríkjanna skipti við að ná þessari niðurstöðu. Nú er Ísland í þeirri stöðu að vera með einstakt samband við Bandaríkin með tvíhliða varnarsamning við þetta öflugasta herveldi heims sem nú hefur aftur fest sig í sessi sem leiðandi ríki í alþjóðamálum á heimsvísu.

Spurning mín lýtur að því með hvaða hætti hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnin hyggst vinna að því að efla tengsl Íslands við Bandaríkin og styrkja samstarf við þau í sessi. Mér skilst að hæstv. forsætisráðherra, eða fulltrúar þessarar ríkisstjórnar, hafi ekki enn leitast við að ná beinu talsambandi við forseta Bandaríkjanna. Verður gerð bragarbót á því? Verður forseta Bandaríkjanna jafnvel boðið til Íslands? Hér á Íslandi eru margir áhugaverðir golfvellir, á sumrin er hægt að spila miðnæturgolf. Ég held að það færi vel á því að bjóða Bandaríkjaforseta til Íslands, veita honum kannski einhver verðlaun og efla og styrkja samstarf þessara ríkja. Ekki veitir af að hafa öfluga bandamenn þegar við horfum upp á vandræðagang vina okkar í Evrópu. Þá veitir ekki af að hafa öfluga bandamenn fyrir vestan haf og treysta (Forseti hringir.) það sem Jónas Jónsson frá Hriflu kallaði Leifslínuna, taugina milli Íslands og Norður-Ameríku.