157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

Efling tengsla Íslands og Bandaríkjanna.

[13:49]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Bandaríkin leika stórt hlutverk á alþjóðavísu og hafa kannski ekki aftur fest sig í sessi, þau hafa alltaf verið mjög stór partur í alþjóðamálum. Það gera sér allir grein fyrir því, hvort sem við erum að tala um stöðuna eins og hún hefur verið á Gaza eða í Úkraínu, að öll þau alþjóðleg samskipti sem við höfum átt hafa alltaf falið í sér að við höfum horft vestur um haf. Meira að segja þegar fókusinn hefur líka verið á evrópskum fundum eru allir leiðtogar sem eru í okkar nánasta umhverfi meðvitaðir um að Bandaríkin séu gríðarlega mikilvægur bandamaður. Þau eru sérstaklega mikilvægur bandamaður fyrir Ísland, rétt eins og hv. þingmaður benti á, í ljósi þess að við höfum átt mjög farsælt samband við Bandaríkin hingað til, og eigum enn þá, á sviði varna sérstaklega.

Við höfum ekki enn þá átt tvíhliða formlegan fund með Bandaríkjaforseta. Ég hef hins vegar hitt Bandaríkjaforseta í tvö skipti og átt í stuttum samræðum við forsetann og nefnt þar sérstaklega áhuga okkar á frekari samskiptum, frekari viðskiptum, frekari fjárfestingu og að styrkja varnarinnviði hér. Skilaboðin sem hafa komið frá íslenskri stjórnsýslu og líka pólitíkinni, ef við tökum þessi samtöl með, hafa verið mjög skýr. Þau hafa verið að við viljum áfram starfa mjög náið með Bandaríkjamönnum. Það að við séum að starfa náið með þjóðum sem eru í Evrópu, þjóðum sem eru utan Evrópusambandsins eins og Noregi, útilokar einmitt ekki þessi samskipti við Bandaríkin. Við höfum mikinn hug á því að efla tengslin líka hér á svæðinu sem er okkar bakgarður, norðurslóðum, og þess vegna hef ég verið í virku sambandi við Færeyinga og Grænlendinga og átti nú síðast tvíhliða fund með forsætisráðherra Kanada þar sem við vorum einmitt að ræða möguleika þess að fá fleiri lönd inn í fjárfestingar og innviðauppbyggingu á svæðinu og Bandaríkin eru velkomin þar með.