Efling tengsla Íslands og Bandaríkjanna.
Frú forseti. Ég er ekki alveg viss um að það dugi í samskiptum Íslands við Bandaríkin að segja að Bandaríkjunum sé velkomið að vera með ef þau vilja í sambandi okkar við Færeyjar og Grænland og aðra. Það virðist vera einhver skortur á veruleikatengingu hjá þessari ríkisstjórn sem boðaði það nýverið að Ísland ætti að verða leiðandi í varnarmálum á norðurslóðum. Er ekki orðið tímabært að ná raunveruleikatengingu hjá þessari ríkisstjórn, gera sér grein fyrir því að Bandaríkin hafi jú aftur fest sig í sessi með fyrri hætti sem leiðandi afl á alþjóðavísu, voru kannski dalandi sem slíkt um tíma en hafa rækilega stimplað sig inn aftur. Þá dugar ekki að spjalla við menn sem menn hitta á göngunum á alþjóðafundum eða halda lyftufund og segja að Ísland vilji gjarnan vinna vel með Bandaríkjunum. Hvaða frumkvæði ætlar ríkisstjórnin og hæstv. forsætisráðherra að sýna í því að treysta samstarf Íslands og Bandaríkjanna?