157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

Efling tengsla Íslands og Bandaríkjanna.

[13:53]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég veit satt best að segja ekki eftir hverju hv. þingmaður er að fiska hérna. Við erum vinir Bandaríkjanna. Ég hef ekkert á móti sterkari og öflugri samskiptum við Bandaríkin. Öll samskipti sem hafa átt sér stað á öllum lögum íslenskrar stjórnsýslu hafa verið jákvæð gagnvart Bandaríkjunum. Það að ég sem forsætisráðherra sé ekki komin með fund í Hvíta húsinu — já, það er kannski miður. (SDG: Símtal.) Það er ekki sérstök staða að finna sig í enda er langt síðan íslenskur forsætisráðherra fór einsamall á tvíhliða fund Bandaríkjaforseta og það veit fyrrum forsætisráðherra vel sjálfur. (SDG: Símtal.) Það er ekki mér á móti skapi að eiga frekari samskipti við Bandaríkin. Öll okkar samskipti hafa verið jákvæð og allar þær línur sem hafa borist því lagi stjórnmálanna í Bandaríkjunum hafa verið jákvæðar. Hér verður ekki fiskað upp úr þeirri tjörn að þessari ríkisstjórn sé eitthvað í nöp við Bandaríkin. Það er mjög jákvætt að eiga í samskiptum við þau. Við munum efla þau nánar. (SDG: Með símtali.) Við spyrjum bara að leikslokum hvernig það fer. (Forseti hringir.) Það liggur inni beiðni um fund með Bandaríkjaforseta og við fylgjum því fast á eftir, hv. þingmaður.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að vera ekki með framíköll (SDG: … forseta.) þegar ræðuhöld eru í gangi.)