Fjárframlög til Ljóssins.
Virðulegur forseti. Eins og hæstv. forsætisráðherra nefnir hér er gríðarlega mikilvægt að við förum vel með skattfé og við þurfum að forgangsraða. Ég vil koma inn á sama mál og var rætt hér í stærra samhengi en koma sérstaklega inn á eitt mál og það er að í fjárlögunum eigi að fella niður tímabundin aukin framlög til Ljóssins upp á 200 millj. kr. Þetta er 40% niðurskurður þar sem um 600 manns njóta aðstoðar og endurhæfingar í hverjum mánuði. Þúsundir hafa nýtt sér þessa þjónustu undanfarin ár. Ljósið er sjálfseignarstofnun sem sinnir mikilvægu hlutverki heilbrigðiskerfisins, endurhæfingu og stuðningi þar sem fagfólk aðstoðar fólk við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra. Heilbrigðiskerfið treystir á starfsemi Ljóssins og því er óskiljanlegt að ríkið ætli að skerða fjárframlög til þess. Samkvæmt hagkvæmnisúttekt frá því í fyrra er ljóst að starfsemin skili a.m.k. milljarði inn í þjóðarbúið með því að veita þjónustu sem er ekki annars staðar að finna. Með tilheyrandi niðurskurði er ljóst að núverandi starfsemi verði ekki áfram haldið með viðeigandi hætti þar sem eru engir biðlistar í dag.
Mig langar að spyrja: Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra til þessarar forgangsröðunar þegar við horfum upp á að það er verið að setja 120 milljónir í t.d. að rampa upp Úkraínu? Það er stuðningur við alþjóðleg samtök hinsegin fólks upp á 150 milljónir. Við erum að stækka Þjóðleikhúsið upp á 2.000–3.000 milljónir og við gerðum starfslokasamning við vararíkissaksóknara upp á 350 milljónir. Við ætlum að skera niður Ljósið um 200 milljónir, 40% af starfsemi Ljóssins. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Er þetta rétt forgangsröðun ríkisstjórnarinnar?