Íslenskt mál og Ríkisútvarpið.
Virðulegur forseti. Á meðal neikvæðra afleiðinga opinnar innflytjendastefnu síðustu ára er að þjóðtunga okkar hörfar á sífellt fleiri sviðum. Enskan tekur völdin í staðinn. Þjóðmenning okkar, samfellan í sögu landsins er í hættu ef ekki verða rammar skorður við reistar. Innflytjendum fjölgar mun hraðar en Íslendingum og þeirri þróun verðum við að snúa við með öllum tiltækum ráðum. En á meðan verðum við að standa 100% vörð um íslenska tungu. Við viljum ekki stjórna öllu þar en við getum stjórnað því t.d. hvernig málnotkun er háttað hjá hinu opinbera.
Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að beita fullum þunga ríkisvaldsins til þess að senda skýr skilaboð um að íslenska sé og verði eina almenna og viðurkennda samskiptamálið í okkar þjóðfélagi. Ríkisútvarpið heldur núna úti mikilli starfsemi á ensku og pólsku þrátt fyrir að ekkert standi um það í lögum samkvæmt mínum skilningi. Kannski var góð hugsun á bak við það upphaflega, líklega, en hún var misráðin og ég tel að við ættum að endurskoða þetta.
Í fyrsta lagi er fjöldi annarra útlenskumælandi miðla sem miðla upplýsingum um íslenskt samfélag, í öðru lagi eru þýðingarvélar að verða býsna góðar og í þriðja lagi, aftur, eru það skilaboðin sem eru að mínu mati röng. Nú koma þar ofan á fréttir um áframhaldandi óskiljanlegan hallarekstur Ríkisútvarpsins sem heldur áfram og við verðum að bregðast við honum með eðlilegum aðhaldsaðgerðum en ekki með því að hafa opinn krana með meira fjármagni. Ég mun því í þessari viku leggja fram þingmál um að Ríkisútvarpið leggi niður alla almenna starfsemi á öðrum tungumálum en íslensku. Það má alveg gera einhverjar afmarkaðar undantekningar í almannavarnaskyni ef svo ber undir, en almennt eiga enska og pólska og önnur erlend mál að falla á brott í almennri umfjöllun.
Þetta er að mínu mati táknrænt. Þetta sendir rétt skilaboð og þetta sparar peninga og því leikur mér forvitni á að vita hvað hæstv. menningarmálaráðherra finnst um þessa hugmynd. Styður hann þessa tillögu eða telur hann hana a.m.k. skref í rétta átt?