Íslenskt mál og Ríkisútvarpið.
Virðulegur forseti. Ég nefndi þetta vegna þess að þetta er ein hugmynd til að standa vörð um stöðu íslenskunnar í opinberu lífi og í samfélaginu. En hæstv. menningarráðherra líst ekki á þetta af einhverjum ástæðum sem hann svo sem útlistaði. Fyrst við erum komin hérna í næstu fyrirspurn þá myndi ég kannski fara í næstu niðurskurðarhugmynd hjá Ríkisútvarpinu og það væri kannski á sviði skemmtiefnis sem sumt hvert er orðið hálfgerður pólitískur áróður. Ég ætla að vísa hér í hugmyndafræðilegan ritstjóra Ríkisútvarpsins, Gísla Martein Baldursson, sem skrifar með leyfi forseta:
„Almannaútvarp eins og RÚV hefur aldrei verið mikilvægara en núna á tímum upplýsingaóreiðu og uppgangs þjóðernis-íhaldssinnaðra lýðskrumara …“
Þetta er stefnumarkandi yfirlýsing sem ég hef óskað eftir að hæstv. ráðherra bregðist við, ekki við Gísla Marteini í sjálfu sér heldur hvort hæstv. ráðherra sé sammála því að Ríkisútvarpið gegni því hlutverki í okkar samfélagi að stemma stigu við tilteknum pólitískum hugmyndum. Er hæstv. ráðherra sammála því eða ekki, alveg óháð því hver talar í þessari tilvitnun?