Íslenskt mál og Ríkisútvarpið.
Virðulegur forseti. Mér láðist að óska hv. þingmanni til hamingju með nýtt og mikilvægt embætti og geri það hér með. Ríkisútvarpið á auðvitað að sinna hlutlægum og málefnalegum leikreglum og á að varpa ljósi á alls kyns viðhorf og það skiptir máli að það sé gert. Mér finnst almennt að Ríkisútvarpið geri það. Hins vegar er alveg sjálfsagt að hvert og eitt okkar hafi skoðun á því hvort það er að rækja það hlutverk eða ekki. Nei, mér finnst að Ríkisútvarpið eigi ekki að stunda innrætingu ef það er það sem hv. þingmaður er að vísa í. Nú er það þannig hins vegar að ráðherra blandar sér ekki beint inn í dagskrárgerð Ríkisútvarpsins. (Gripið fram í.) Þó svo að Ríkisútvarpið heyri undir ráðuneytið þá er útvarpsráð t.d. skipað af Alþingi. (SMás: … sammála …)
(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð, hv. þingmaður.)
Fyrirgefðu, sammála hverju?
(Forseti (ÞSv): Hv. þingmaður.)
Að? (SMás: … að Ríkisútvarpið …)(Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Hæstv. ráðherra er með orðið. Ég bið þingmanninn að gefa honum hljóð svo að hann geti svarað. Það eru almennar reglur í þessum þingsal og eftir þeim eiga allir að fara. Hæstv. ráðherra má klára mál sitt.)
Ríkisútvarpið á að sinna hlutlægum og hlutlausum fréttaflutningi, á að varpa ljósi á mál úr ýmsum áttum. Það er hlutverk þess. Það rækir það ágætlega.