157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[14:22]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um almannatryggingar þar sem kveðið er á um mikilvægar breytingar til að bæta stöðu þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Markmiðið með frumvarpinu er að tryggja að greiðslur almannatrygginga fylgi launavísitölu í stað þess að taka mið af spá um launaþróun líkt og framkvæmdin hefur verið, en það hefur í mörgum tilvikum leitt til lakari kjarabóta heldur en ef miðað hefði verið við launavísitöluna. Í frumvarpinu er þannig lagt til að greiðslur almannatrygginga, sem eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorkuendurhæfingar, muni framvegis fylgja raunverulegri þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun og vísitölu neysluverðs. Sú tillaga að breytingu á lögum um almannatryggingar, sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir, var áður lögð fram á 156. löggjafarþingi en náði því miður ekki fram að ganga eins og frægt er orðið væntanlega.

Allt frá því að ég stofnaði Flokk fólksins árið 2016 hef ég barist fyrir því að kjör almannatryggingaþega fylgi raunverulega launaþróun í landinu en ekki vísitölu neysluverðs eða spá um launaþróun sem yfirleitt reynist lægri en launaþróunin er í reynd. Ég mæli nú fyrir frumvarpi um tengingu almannatrygginga við launavísitölu í áttunda sinn en ég hef einu sinni áður mælt fyrir málinu sem ráðherra, nú fyrr á árinu, og sex sinnum mælt fyrir málinu sem þingmaður í stjórnarandstöðu.

Samkvæmt gildandi lögum er kveðið á um að fjárhæðir almannatrygginga skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni, þar sem tekið er mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en vísitala neysluverðs. Launavísitalan er gefin út af Hagstofu Íslands og er opinber mæling á breytingum heildarlauna í samræmi við lög um launavísitölu og er aðgengileg öllum. Með því að festa í lög að greiðslur almannatrygginga skuli hækka í samræmi við þróun launavísitölu, eins og lagt er til í þessu frumvarpi, er að stefnt að því að greiðslurnar fylgi betur almennri kjaraþróun á vinnumarkaði. Þannig er betur tryggt að þeir sem reiða sig á greiðslur úr almannatryggingum dragist ekki aftur úr öðrum þegar kemur að kaupmætti.

Með þessu frumvarpi bindum við enda á þá kjaragliðnun sem hefur viðgengist í samfélaginu um árabil og orsakar það að munur á milli grunnlífeyris og lægstu launa er í dag um 102.000 kr. Gamla fyrirkomulagið olli því að reglulega hækkuðu kjör almannatrygginga um lægri prósentu en laun á almennum vinnumarkaði og því breikkaði þetta bil kjaragliðnunar ár frá ári á milli launa og lífeyris. Með því að tengja lífeyri almannatrygginga við launavísitölu girðum við fyrir að þetta gerist aftur og tryggjum örorku og ellilífeyrisþegum ígildi þess að sitja við kjaraborðið. Verði frumvarp þetta að lögum er gert ráð fyrir að það hafi jákvæð fjárhagsleg áhrif á alla sem fá greiðslur úr almannatryggingum. Gerður hefur verið samanburður á launa- og verðlagsbótum almannatrygginga síðasta áratug og hækkun launavísitölu og hefur sá munur verið um 1,7% á ári að meðaltali. Útgjöld ríkissjóðs til almannatrygginga og tengdra greiðslna eru um 230 milljarðar kr. á yfirstandandi ári og er 1% hækkun því um 2,3 milljarðar.

Forseti. Frumvarpið mun því í raun bæta kjör almannatryggingaþega að meðaltali um 4 milljarða kr. á ári. Útgjaldaaukningin er í formi skattskyldra tekna til einstaklinga sem nú þegar fullnýta persónuafslátt og því ættu skatttekjur af fjárhæðinni að skila sér til ríkis og sveitarfélaga. Tillaga frumvarpsins um tengingu greiðslna almannatrygginga við launavísitölu er í samræmi við fyrirheit í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að leitast við að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með því að lögfesta þessa breytingu eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi þar sem meiri jöfnuður ríkir. Því skal þó haldið til haga að við erum ekki komin í mark hvað þetta varðar. Við munum því ótrauð halda áfram að vinna að bættu samfélagi fyrir alla þá sem þurfa að treysta á stuðning hins opinbera til lífsviðurværis síns.

Ég vil ítreka það að það hefur í rauninni vakið furðu mína þegar við erum að tala hér um að meðaltali 4 milljarða kr. á ári, sem þegar hefur verið gert ráð fyrir alveg frá því að þessi ríkisstjórn var stofnuð og því aldrei farið á milli mála, að talað sé um að þetta sé eitthvað að koma á óvart og að þetta muni sigla þjóðarskútunni í strand og að þessi og hin hagsmunasamtökin úti í bæ, sem er nákvæmlega sama um fátækasta fólkið í landinu, skuli nú skera upp herör gegn þessu frumvarpi og benda á að það sé bara alveg skelfilegt. Það er sem sagt alveg óverjandi að þeirra mati að koma til móts við þá sem fátækastir eru í samfélaginu.

Frú forseti. Mér er farið að misbjóða það — mér er farið að misbjóða það — að þurfa að verja fólk ítrekað hér á hinu háa Alþingi, fólk sem lepur dauðann úr skel, fólk sem hefur verið múrað inni í rammgerða fátæktargildru um árabil og á sér enga möguleika á að brjóta þá múra og koma sér í betri stöðu. Það er í rauninni forkastanlegt, vægast sagt forkastanlegt, hvernig nokkur gæti haft í sér nokkra einustu taug að mæla því mót að reyna að koma til móts við okkar minnstu bræður og systur.

Frú forseti. Að lokinni þessari 1. umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar og að því verði sannarlega vel tekið og það bruni í gegnum velferðarnefnd á fullri ferð þannig að hv. stjórnarandstaða geti með gleði tekið utan um þetta mál sem og mörg önnur sem þau fá í fangið og örugglega, með bros á vör, afgreiða það með hjartað algerlega fullt af kæti.