157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[14:29]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar ræðu hér varðandi þetta frumvarp sem kemur einmitt breytt fram núna. Það var lagt fram á síðasta vorþingi með fleiri þáttum í en umrætt frumvarp er auðvitað á margan hátt jákvætt og mikilvægt. Ég held við séum öll sammála um að bæta kjör þeirra sem verst standa. Hins vegar er það eðlilega þannig að það vakna upp vissar spurningar. Mig langar að fara yfir hluta þeirra því að almennt er viðurkennt að svigrúm til launahækkana sem samræmist verðstöðugleika sé að jafnaði 3,5-4% árlega. Launavísitalan hefur hins vegar hækkað hérlendis um 6,7% að meðaltali frá árinu 1990 og hefur það leitt til þrýstings á verðlag og vaxtastig. Það eðlilega vekur okkur til umhugsunar í ljósi viðvarandi verðbólgu og hárra vaxta sem við erum hreinlega ekki að ná tökum á. Sú tenging örorkulífeyris og launavísitölu sem frumvarpið gerir ráð fyrir mun samkvæmt greinargerð með frumvarpinu leiða til verulegrar aukningar í opinberum útgjöldum eða um 4-5 milljarða kr. á ári. Þetta kallar óhjákvæmilega á breytta forgangsröðun eða hagræðingu í opinberum rekstri og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Getur hæstv. ráðherra fullvissað okkur um að fyllilega sé gert ráð fyrir þessum viðbótarkostnaði í fjárlagafrumvarpi 2026? Hefur verið lagt mat á það hvort kostnaðurinn geti farið fram úr þeirri áætlun sem nú liggur fyrir og hefur áætlunin verið meira mótuð eða settar fram einhverjar hagræðingaraðgerðir til þess einmitt að mæta þessari hækkun?