almannatryggingar.
Frú forseti. Mig langar að byrja ræðu mína á því að vísa til orða hæstv. ráðherra sem var að gagnrýna þá sem eru kannski á móti vegferðinni að markmiðinu, því að ég held að við séum öll sammála markmiðinu sem gengur í raun út á það að tryggja örugga framfærslu fyrir þá sem búa í samfélaginu almennt, ég tala nú ekki um þá sem verst standa. Það sem við erum hins vegar að gera hér í stjórnarandstöðu er kannski að vekja athygli á vegferðinni. Við erum kannski ekki endilega sammála vegferðinni þó að við séum sammála markmiðinu. Það er eðlilegt að viðra áhyggjur sínar og það er okkar hlutverk hér að viðra þær áhyggjur sem við höfum af málinu og einmitt gera tillögu og tilraun til að gera gott mál jafnvel enn betra.
Það eru nokkur atriði sem mig langar til að fara yfir í tengslum við þetta mál. Það er margt mjög jákvætt í því en eins og ég kom inn á í andsvari mínu áðan til hæstv. ráðherra þá er það auðvitað hagur allra, þar á meðal eldri borgara og örorkulífeyrisþega, að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Það á að vera okkar aðalmarkmið hér á þessu þingi. Þegar við erum að koma með mál sem er þensluhvetjandi þá hringja viðvörunarbjöllur, það er eðlilegt. Í svörum hæstv. ráðherra talaði hún um að þetta myndi bæta kjör eldri borgara og öryrkja og þess vegna sé verið að tengja við launavísitölu og hæstv. ráðherra gagnrýndi síðustu ríkisstjórn fyrir að hafa ekki tekið þetta skref.
Ef við förum yfir svar frá fjármálaráðuneytinu við fyrirspurn fyrrverandi þingmanns, Björns Levís Gunnarssonar, þá kemur fram, ef við tökum saman stóru myndina, að undanfarin 30 ár var í raun horft til vísitölu neysluverðs í stað launavísitölu. Það skilaði því að það var 118% hærri upphæð sem fór til örorkulífeyrisþega miðað við breytingar á vísitölu neysluverðs og 18% hærri miðað við breytingar á launavísitölu. Það sýndi sig að ef stuðst hefði verið við launavísitölu síðastliðin 30 ár hefði hagur örorkulífeyrisþega og ellilífeyrisþega í raun versnað. Að mínu mati er því afar mikilvægt að verið sé að skoða allt í kjölinn og athuga hvort verið sé að taka réttar ákvarðanir hverju sinni og hvort fyrir liggi greiningar að baki þeim ákvörðunum sem verið er að taka.
Í því ljósi þá hefur svona mál, eins og hefur komið fram, í för með sér 4–5 milljarða kostnað sem hefur áhrif á opinber fjármál. Við þurfum að muna það að lög um opinber fjármál gera kröfu um fyrirsjáanleika og eitt grunngildi laganna er einmitt varfærni, með leyfi forseta, „sem miðar að hæfilegu jafnvægi á milli tekna og gjalda, og að ekki séu teknar ákvarðanir eða aðstæður skapaðar sem geta haft ófyrirséðar og neikvæðar afleiðingar.“ En það er einmitt áætlað að þessi breyting hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð upp á 4–5 milljarða kr. á ári. Einnig hafa áhrifin af þessari tengingu keðjuverkanir á önnur kerfi hjá okkur. Við sjáum að þetta hefur áhrif á atvinnuleysisbætur, um 400–500 milljónir á ári. Í frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Breytt verklag getur einnig haft áhrif á önnur útgjöld ríkissjóðs. Þannig hafa atvinnuleysisbætur oftast tekið sömu hækkunum og fjárhæðir greiðslna almannatrygginga.“
Tenging við launavísitölu gæti leitt til 400–500 millj. kr. kostnaðarauka vegna atvinnuleysistrygginga. Þá erum við að horfa á barnalífeyri, við erum að horfa á meðlag, við erum að horfa á húsnæðisbætur. Hvaða áhrif hefur þetta mál á slíkar bætur? Það er því kannski eðlilegt að við spyrjum okkur að því — reyndar er hæstv. ráðherra ekki hér, ég vona að hún sé að fylgjast með einhvers staðar, — hvort það hafi verið metið hvernig útgjaldavöxturinn fellur að markmiðum ríkisfjármála og fjármálastefnu? Ef það er kostnaðarauki í þessu, hvernig hyggst ríkisstjórnin fjármagna þá viðbót? Ætla þau að skera niður einhvers staðar annars staðar, á að hagræða einhvers staðar í rekstri eða á að koma með enn eina skattahækkunina á landsmenn? Það er eðlilegt að við spyrjum að þessu.
Síðan þarf líka að huga að greiningu á víxlverkandi áhrifum bóta og lífeyriskerfisins því að frumvarpið tekur ekkert ítarlega á víxlverkandi áhrifum á milli almannatrygginga og annarra bóta, svo sem lífeyrissjóða, félagsþjónustu eða húsnæðisbóta. Þá er líka mikilvægt að meta það hvort hækkun bóta úr einu kerfi leiði til skerðingar einhvers staðar annars staðar og hvort raunveruleg kjarabót verði þar af leiðandi jafnvel minni, því við vitum að það eru skerðingar víðs vegar í kerfinu, því miður, og þegar við erum að hækka tekjur einhvers staðar þá gætu komið enn frekari skerðingar annars staðar, t.d. varðandi alls konar bótaflokka og hitt og þetta sem sveitarfélög eru að gera og ríkið líka. Er þá verið að fara að hækka þau mörk eða munu þau koma til skerðingar á þessu þegar upp er staðið? Hver er heildarniðurstaðan þegar þetta allt er komið fram? Maður veltir því fyrir sér hvort þessi víxlverkun hafi verið metin með heildstæðum hætti. Þessu var ég að reyna að kalla eftir áðan í umræðum við ráðherra og það væri áhugavert, ef hún tekur þessa umræðu saman hér á eftir, að hún geti komið inn á þessi atriði.
Maður veltir því líka fyrir sér, af því að hæstv. ráðherra kom inn á það áðan að hér væru einstaklingar, með leyfi forseta, „að lepja dauðann úr skel“. Ekkert okkar vill þá stöðu í samfélaginu að einstaklingar eigi ekki fyrir húsaskjóli eða mat en því miður er það raunin og við höfum fengið að heyra alls konar tölur. Nýjustu tölur sem ég hef fengið að heyra eru að 7.000 eldri borgarar hafi það bara, eins og formaður Landssambands eldri borgara segir, verulega skítt. Hæstv. ráðherra kom inn á það hér áðan að það ætti að koma desemberuppbót, sem er bara einskiptisaðgerð og hefur verið við lýði undanfarin ár. Það ætti að koma til móts við einstaklinga þannig, þá verst settu. Einskiptisaðgerð dugir ekki til. Hér þarf raunverulega að leggja fram aðgerðir sem styðja við verst settu eldri borgarana. Það þarf bara að koma fram hérna skýr sýn og skýrt mál sem er fjármagnað til þess einmitt að styðja við þessa einstaklinga því að desemberuppbót ein og sér dugar ekki til, hún bjargar kannski jólunum. Ég vil því hvetja hæstv. ráðherra til þess að leggjast aðeins yfir þetta og skoða hvort það sé hægt því að við í þingflokki Framsóknar munum klárlega styðja raunhæfar aðgerðir til að styðja við kjör verst settu eldri borgaranna og ég tala nú ekki um barnafjölskyldur í landinu.
Ef við erum með takmarkaða fjármuni er afar mikilvægt að hafa forgangsröðunina á hreinu. Í mínum huga er mikilvægt að mæta þeim sem verst standa áður en við förum að horfa á allan fjöldann sem þarf kannski ekki á þessum aðgerðum að halda, ég tala nú ekki um ef við erum með þensluhvetjandi aðgerðir eins og þessa, að ekki sé horft til þess hvaða áhrif verðbólga og vextir hafa þá í rauninni á raunverulega niðurstöðu. Það væri áhugavert að fá að sjá það og heyra í umræðunni á eftir, kannski mun það koma fram, hver verða raunveruleg áhrif á verðbólgu og vaxtastig í tengslum við þetta mál því að við viljum auðvitað öll að breytingin styrki kjör þeirra sem mest þurfa á að halda án þess að það grafi undan stöðugleika og jafnvægi í opinberum fjármálum.
Nú ætla ég að biðja hv. þingmenn að hafa það í huga að þó svo að maður sé að koma með ábendingar hér gagnvart þessu máli og setja vissa fyrirvara því að oft erum við að festa eitthvað í lög eins og þetta núna, ef við horfum til baka síðastliðin 30 ár, við vitum ekki nákvæmlega hver næstu 30 ár verða, þá sjáum við það skýrt að ef það hefði verið sett í lög fyrir 30 árum að tengja ætti við launavísitölu hefðu kjör öryrkja og eldri borgara verið verri í dag en þau eru. Það er því mikilvægt að við horfum á heildarmyndina og metum áhrifin út frá heildinni, ekki út frá einstökum atriðum og málum hlutina þannig upp að þeir sem gagnrýna málið og koma með ábendingar séu hreinlega á móti því að bæta stöðu þeirra verst settu. Það er alls ekki raunin heldur erum við einfaldlega að reyna að koma með ábendingar sem raunverulega gagnast þessu máli og sérstaklega þeim einstaklingum sem verst standa.
Ég ætla að láta þetta duga í bili. Það eru margar vangaveltur sem koma upp í tengslum við þetta mál og ég bind vonir við að við munum eiga góða umfjöllun um þetta mál í velferðarnefnd líkt og við áttum á vorþingi. Við könnumst örlítið við þetta mál þó að það komi breytt fram núna. Það er t.d. ekki verið að taka hérna á breyttu örorkulífeyriskerfi og hvernig við ætlum að fjármagna það því að á vordögum kom það fram í frumvarpi að fasa ætti út jöfnunarframlagið og þar af leiðandi átti kostnaðurinn að leggjast á lífeyrissjóði. Ég hef ekki fengið skýr svör um hvernig á að fjármagna þær breytingar enn sem komið er en ég bind vonir við að ríkisstjórnin endurskoði þetta jöfnunarframlag og haldi áfram að leggja það til til þess einmitt að kostnaðurinn leggist ekki á lífeyrissjóði landsins. Ég læt þetta duga í bili.