almannatryggingar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir sína ræðu. Hún var alveg ljómandi ágæt. Það sem mig langar kannski að segja í þessu andsvari er að þessi ríkisstjórn er að forgangsraða sínum málum alveg eins og ríkisstjórnin sú síðasta og þar áður og þar áður. Það gerir ríkisstjórn; hún forgangsraðar sínum málum. Það sem þessi ríkisstjórn er sérstaklega að gera er að hagræða, við köllum það tiltekt, það er sparnaður og við erum að skoða og endurraða hvernig fjármunum er háttað. Þannig er hugsunin; þetta er eitt af þeim málum sem eru pólitísk mál þessarar ríkisstjórnar og það vill svo vel til að allir þrír ríkisstjórnarflokkarnir standa 100% saman að þessu máli, sem og öðrum, sem gerir þetta virkilega ánægjulegt. Núna er verið að huga að þessum hóp og stöðva þessa kjaragliðnun, eins og það hefur verið orðað ítrekað, bæði hjá ráðherra og í umræðunni hérna núna og á síðasta þingi.
Það er merkilegt að þegar er verið að tala um þessa lægst launuðu og verst settu þá verður umræðan um verðbólgu ótrúlega hávær. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvað finnst henni þá um laun þeirra hæst launuðu og hækkanir á þeim launum? Hvort það sé ekki líka til að koma verðbólgunni úr skefjum? Það fólk sem hefur ráð og á efni á að vera í mikilli neyslu og þá á ég við að fara erlendis og nota peningana, senda þá út í umhverfið og samfélagið. Hvað með verðbólgu þegar kemur að þessum hóp? Ég vil fá að heyra aðeins um þetta.