157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:04]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, það er í hlutarins eðli hlutverk ríkisstjórnar hverju sinni að forgangsraða sínum málum. Hér kom hv. þingmaður einmitt inn á tiltekt og sparnað í kerfinu. Ég sé hins vegar bara skattahækkanir. Ég sé að tiltektin er það mikil að það er jafnvel verið að taka út verkefni og sópa út úr verkefnum sem hafa verið að virka vel með tilheyrandi kostnaði og jafnvel kostnaðarauka.

Ef við horfum t.d. á Janus endurhæfingu, sem ég veit að hv. þingmaður þekkir vel til, þar var t.d. úrræði sem virkaði vel fyrir verst setta hópinn í landinu sem þurfti raunverulega á þessari þjónustu að halda og þurfti á stöðugleika að halda. Hins vegar var því úrræði bara kippt út og hópurinn stóð eftir algjörlega úrræðalaus. Það var komið upp öðru þjónustustigi í tengslum við þennan hóp og mér skilst að það gangi því miður ekki nægilega vel. Kostnaðurinn í kringum það er hugsanlega þegar á hólminn er komið jafnvel meiri heldur en ef við hefðum haldið okkur við það sem virkaði vel.

Síðan eru það vökvagjafir til einstaklinga með POTS og „long Covid“ og fleira, en nú er búið að hætta niðurgreiðslum á vökvagjöf til þessara einstaklinga sem voru komnir út í samfélagið aftur, farnir að taka þátt í vinnu, mennta sig eða fleira og gátu tekið þátt í hinu daglega lífi. Í dag geta þeir það ekki lengur. Hver er kostnaðurinn raunverulega fyrir samfélagið þegar einstaklingar sem gátu verið að vinna og greitt sína skatta eru komnir í rúmið aftur? Það sem ég er að benda á að við þurfum að horfa á heildarmyndina þegar ákvarðanir eru teknar. Þegar við hættum einni þjónustu, og erum með hóp sem þarf raunverulega þjónustu að halda, að við séum búin að hugsa næstu skref sem koma á eftir; að við séum ekki að plástra eitthvað og koma með eitthvað eftir á.

En varðandi launaskriðið. Jú, vissulega hefur það áhrif. Launin (Forseti hringir.) hjá sumum einstaklingum eru upp úr öllu valdi. Ég held að það sé eitthvað sem við gætum hugsanlega skoðað varðandi (Forseti hringir.) þá hæst launuðu, en laun almennt í landinu hafa hækkað gríðarlega á undanförnum árum.