157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:06]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar svar. Varðandi Janus og POTS vökvagjöfina, og Ljósið sem hefur verið nefnt hérna, þá vil ég bara segja það að hæstv. heilbrigðisráðherra hefur svarað mjög vel fyrir þessa hluti og ítrekað og útskýrt þessar ákvarðanir sem tengjast þessum þáttum. Ávallt er hægt að óska eftir frekari svörum ef þingmönnum finnst einhver atriði ekki hafa verið nægilega skýr.

Hér er verið að endurraða og endurskoða og raða hlutunum þannig upp að það sé verið að nýta peningana sem best. Mér finnst samt, ég verð að segja það, og kalla aftur eftir því af hverju umræðan um verðbólguna verður aldrei nógu afgerandi og skýr þegar við erum að horfa upp á launaskrið og launahækkanir. Við erum að tala um góðan hóp í samfélaginu sem er með margar milljónir á mánuði á meðan ákveðinn hópur, sem hér er verið að reyna að bæta í og laga, rétt nær rúmlega 300.000 kr. Þarna þurfum við sem þingmenn (Forseti hringir.) hér öll sem eitt að kalla eftir meiri sanngirni þegar kemur að launamálum í þessu samfélagi.