157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:24]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Þetta er búin að vera ágætisumræða svo langt sem hún nær. Þetta er auðvitað dálítið endurtekið efni frá síðasta þingi og við vissum svo sem kannski öll vel að ágreiningurinn eða skoðanaskiptin eru einmitt á þá vegu sem þau hafa verið nú sem fyrr og munu sennilega halda áfram allt út í gegn. Þetta er mál sem er sérstakt að því leyti að kjarninn í því er hápólitískur. Hér er verið að taka skref sem er einfaldlega að hjálpa ákveðnum hópi í þessu samfélagi. Að kalla eftir greiningum og mati og annað slíkt er kannski ekki endilega það sem hugsunin er á bak við þetta heldur einfaldlega að taka þetta stóra skref að stoppa þessa kjaragliðnun. Eitthvert gat verður kannski þarna eftir sem áður og það er þá bara seinni tíma mál að skoða hvað gert verður við það.

Mig langar aðeins að renna yfir nokkur atriði og e.t.v. verður eitthvað um endurtekningu frá því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra. Það sem verið er að gera núna og er búið að vera draumur margra lengi, ekki aðeins Flokks fólksins þó að þetta hafi verið sannarlega mikið baráttumál flokksins, er að með þessu frumvarpi er verið að styrkja stöðu þeirra sem fá greiðslu úr almannatryggingum með því að tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af launaþróun líkt og lög gera ráð fyrir núna. Þetta er aðalatriðið í þessu. Kannski eru ekkert allir í samfélaginu með það á hreinu hver munurinn er en frumvarpið er dálítið flókið að því leytinu til að í því er mikið af tölum og prósentum. Engu að síður er það fljótlesið þannig að ég hvet þá sem eru kannski ekki almennilega inni í þessu til að kíkja á frumvarpið.

Undanfarinn áratug hefur gliðnað á milli kjara elli- og örorkulífeyrisþega annars vegar og þeirra sem eru á lægstu laununum á vinnumarkaðnum hins vegar. Markmiðið með þessu frumvarpi er að þessi kjaragliðnun verði stöðvuð. Með því að miða hækkanir á greiðslum Tryggingastofnunar við launavísitölu eða að lágmarki við verðlagshækkanir fá eldri borgarar og öryrkjar ígildi þess að sitja við kjarasamningsborðið. Þetta er það sem hefur verið kallað eftir ansi lengi. Flokkur fólksins hefur barist fyrir þessum breytingum í mörg ár og nú verða þær vonandi að veruleika með frumvarpi Ingu Sæland, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ég vil líka taka það fram hér, af því að tvisvar í dag er búið að ræða um hvort ríkisstjórnin sé ósátt eða í uppnámi eða ekki sammála, að þetta frumvarp er eins og öll önnur mál ríkisstjórnarinnar í fullkominni sátt og samlyndi þessara þriggja flokka. Mér þykir eiginlega bara svolítið leiðinlegt að segja þetta því ég veit að það er svo mikil óskhyggja margra hér inni að svo sé ekki. Okkur stjórnarþingmönnunum finnst, held ég, dálítið skondið þegar við heyrum um þessa þrá eftir því að ríkisstjórnarflokkarnir séu ósáttir og ekki sammála vegna þess að við vitum svo vel að svo er ekki. Þetta er alveg ótrúleg samvinna og mikil vinátta milli þessara ríkisstjórnarflokka. Ég hef aldrei vitað annað eins, og hef ég nú fylgst með stjórnmálum lengi og er ekki yngsta kynslóðin hérna.

Hér er um að ræða gríðarlega mikið framfaraskref fyrir tugþúsundir öryrkja og eldri borgara sem hafa um árabil horft upp á kjör sín dragast aftur úr launaþróun í samfélaginu. Mér þykir svo vænt um líka að heyra að við erum í rauninni öll á því að vilja gera eitthvað fyrir þennan hóp. Ég trúi því algjörlega að það sé einlægt þegar það er sagt. En svo er auðvitað alltaf spurning um aðferðirnar. Við viljum alveg klárlega sama markmið, að allir geti lifað af sínum tekjum. Með þessari breytingu munu ráðstöfunartekjur öryrkja og eldri borgara fylgja launaþróun í samfélaginu eins og upphaflega var ætlunin þegar þessi regla var sett 1997, þannig að við erum ekki að tala um neitt nýtt hér. Þetta er eins og með margt annað kannski að nú er verið að gera hluti sem lengi hefur staðið til að gera en hefur einhvern veginn ekki tekist að klára.

Málið var til meðferðar á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga og það voru náttúrlega ákveðnar ástæður fyrir því eins og vel er kunnugt. Þá voru einstaka þingmenn mjög á móti þessu og ég heyri að það er enn og þannig mun það verða í nefndinni. Ég sé alveg fyrir mér í velferðarnefndinni, en þetta mál mun ganga til þeirrar nefndar, að þá munum við eilítið fara inn á sömu braut og takast á um þessa sömu hluti. En ég vil aftur benda á að það stendur ekki til að fara í einhverjar gjörbreytingar á þessu frumvarpi þannig lagað séð, að bíða eftir einhverjum greiningum og fara að skoða tölur því að þetta er kjarninn í frumvarpinu, þetta er hinn pólitíski kjarni. Þetta er kjarninn sem þessi ríkisstjórn hefur valið að halda til streitu og út á þetta gengur málið. En það er sjálfsagt að skiptast á skoðunum og ég er líka þakklát fyrir hvernig þingið virkar, að þeir sem eru andsnúnir þessu einlæglega og hafa sín rök muni fá þetta tækifæri til þess að rökstyðja sín mótmæli í ræðu og riti, í sérbókunum og séráliti. Allir eiga að fá tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri. Út á það gengur lýðræðið. En engu að síður er það þessi ríkisstjórn sem er í meiri hluta og mun hafa lokaorðið um hvaða mál verða samþykkt. Þetta mál mun verða samþykkt. Það er algjörlega skothelt eins og ég stend hér.

Það er nefnilega líka búið að eyrnamerkja fjármagn til að mæta þessum kostnaði. Það höfum við heyrt ítrekað frá ráðherra, alveg sama hvaða gagnrýni hefur komið, og ráðuneyti hans, það er auðvitað bara þeirra að vinna sína vinnu, en ráðherra hefur staðið hér ítrekað og rætt þessi mál og þetta fjármagn er frátekið. Á hverju ári eftir að þetta frumvarp er samþykkt og þetta gengið í gildi þá mun verða eyrnamerkt ákveðin upphæð til að mæta þessum aukakostnaði. Þetta eru alveg vissulega ákveðnar upphæðir.

Með því að tryggja að lífeyrir almannatrygginga fylgi launavísitölu erum við að stíga mikilvægt skref í átt að réttlátara samfélagi þar sem allir fá notið þeirrar kaupmáttaraukningar sem samið er um á vinnumarkaði. Það er aðalatriðið. Hvort það eru 7.000, 8.000 eða 10.000 er ekki aðalatriðið hérna, ekki í þessari lotu. Hvort komi til sértækrar aðgerðar seinna veit ég ekki. Það er alla vega ekki á þingmálaskrá nú en það er aldrei að vita og ég er sannarlega talsmaður sértækra aðgerða ef þess er þörf. Loksins fá þeir sem minnst hafa umtalsverða leiðréttingu á kjörum sínum. Þessi hópur hefur beðið lengi og hann bíður og núna loksins er þessi draumur að rætast því þetta er svo löngu tímabær leiðrétting. Það var auðvitað bara mjög sorglegt að hún náði ekki fram að ganga á síðasta þingi því að hver mánuður og hver dagur skiptir máli fyrir þá sem ná endum engan veginn saman. Við erum að tala um ótrúlega lágar upphæðir þegar kemur að þessum lægsta hópi. Ég held að fólk geri sér oft ekki grein fyrir hversu ótrúlega ómögulegt það er að lifa á, hvað erum við að tala um, 350.000 kr. því lægsta og kannski lægra. Þetta er eitthvað sem er útilokað að reyna að lifa af.

Ég vil bara segja að ég er mjög ánægð með að eftir þennan dag þá verður búið að mæla fyrir þessu frumvarpi og það kemur til velferðarnefndar og ég á þá von heitasta að við gætum unnið þetta hratt og vel og kannski ekki endilega verið að endurtaka okkur of mikið. Við erum búin að heyra sömu gagnrýnina og ræðurnar oft en auðvitað viljum við gera þetta samt vel og ítarlega og alls ekki að fólk upplifi það hér að við séum að vinna vinnuna okkar hratt og ekki nógu vel. Um er að ræða ekki lengur launaþróun heldur launavísitölu og ég hvet þá sem eru óöruggir með þetta til að kynna sér út á hvað þetta gengur. Frumvarpið er í rauninni skýrt miðað við hvað það getur þó verið óskýrt á köflum þegar allar þessar prósentuhækkanir koma.

Varðandi þau andsvör sem hafa borist hérna þá fannst mér þau fá góð viðbrögð og kannski ekkert mikið meira um það að segja. Ég vil trúa því innst inni að þó að það sé gagnrýni þá vilji það sama fólk kannski jafnvel styðja þetta. Kannski munu fleiri styðja þetta heldur en við gerum ráð fyrir núna því að þetta er jú eitthvað sem stór hópur fagnar og hefur beðið eftir.

Ég held að ég hafi þetta ekki lengra og sjái bara hvað kemur meira hér fram í dag en hlakka til að fá þetta inn í nefndina og vona að við getum unnið þetta vel faglega en samt hratt og örugglega.