157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[16:00]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér er vel kunnugt um það að mjög margir fjársterkir aðilar í þjóðfélaginu deila þessum áhyggjum með hv. þingmanni sem er náttúrlega að halda þeim á lofti hérna og vara við þessu. Þessi hvati til vinnu, eins og ég segi, og að halda því fram að fólk sem getur sannanlega ekki unnið — af hverju þarf að lækka bætur þeirra til að hvetja það til að fara að vinna? Viljum við vera þjóðfélag sem dæmir þá sem eru veikastir fyrir til fátæktar? Það er það sem verið er að tala um ef enginn, sem er svo óheppinn að lenda þarna megin í lífinu og getur ekki unnið, má fara upp fyrir lágmarkslaun. Að þurfa að þiggja örorkubætur og geta ekki unnið. Bætur eru til framfærslu en það er líka alveg vitað að öryrkjar eru ekkert of sælir af því sem þeir eru að fá. Þeir geta ekki leyft sér mikið. Hvaða gagn gerir það að hvetja fólk til atvinnuþátttöku sem getur ekki stundað atvinnu? Af hverju eigum við að halda því niðri með þessum hvata sem hefur ekkert að segja fyrir fólk sem getur ekki heilsu sinnar vegna stundað vinnu? Þetta er bara hugsunarháttur sem ég er ekki hrifin af. Það er enginn á örorkubótum að gamni sínu. Það á ekki að vera dómur til fátæktar að veikjast á Íslandi.