157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[16:07]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég hef verið að fylgjast með umræðu um þetta mál. Reyndar furða ég mig mjög á því að hæstv. ráðherra sjái ekki ástæðu til að vera hér í salnum og taka þátt í þessari umræðu. (Gripið fram í: Stærsta málið. )Nákvæmlega það sem hæstv. ráðherra hefur margítrekað, að þetta sé stærsta málið og flutti hér hjartnæma ræðu áðan þegar hún lagði málið fram um hversu mikilvægt þetta væri og hversu stór hluti þetta væri af einmitt kosningaloforðum Flokks fólksins. Umræðan sem átt hefur sér stað í dag hefur verið ágæt og yfirveguð. Hér hefur verið bent á það sem áður hefur komið fram í umræðu um sambærilegt mál sem flutt var á síðasta þingi, þ.e. hér var flutt stærra mál á síðasta þingi sem var með fleiri liðum. Nú er tillagan endurflutt óbreytt en í sérstöku frumvarpi, þ.e. bara tillagan varðandi þróun launavísitölu.

Virðulegur forseti. Ég hjó eftir einu í svörum hæstv. ráðherra við andsvari frá hv. þm. Sigríði Á. Andersen sem spurði út í það hvernig brugðist hefði verið við þeim ábendingum og athugasemdum sem fram höfðu komið. Ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt þá voru svörin einfaldlega sú að hæstv. ráðherra var þeim bara ekki sammála. Hvað sem okkur kann að finnast um það, pólitíkusum eða stjórnmálamönnum sem hér eru, hvort við séum sammála einhverju, þá verð ég að viðurkenna, virðulegur forseti, að mér hefði fundist fara betur á því að frumvarpið sem við hér ræðum væri með einhverjum kafla og einhverjum útskýringum á því, á þeim athugasemdum sem fram hafa komið við umfjöllun um sambærilegt mál. Þar sem ég sit ekki lengur í hv. velferðarnefnd þá langar mig að hvetja þá sem sitja í þeirri nefnd og sitja kannski hér í salnum eða fylgjast með þessari umræðu að fara mjög vel yfir það því t.d., virðulegur forseti, ef ég opna hér athugasemdir frá ASÍ frá því á síðasta þingi þá segir hér, með leyfi forseta:

„ASÍ telur ekki þörf á að breyta lögum þannig að þróun almannatrygginga sé fest við launavísitölu. Aðferðin sem lögð er til með lagabreytingunni rúmast innan núverandi laga.“

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort það var fjallað ítarlega um þetta í hv. velferðarnefnd á síðasta þingi, það eru alla vega engin viðbrögð við því hér og ég hef ekki heyrt það í umræðunni. Að sama skapi hefur verið vísað í það sem fjármálaráð hafði fram að færa og ég get ekki séð það í greinargerðinni með þessu frumvarpi að við því sé brugðist með neinum hætti. Mér finnst, virðulegur forseti, ýmislegt vanta upp á frumvarpið sem slíkt, þ.e. í greinargerðina með frumvarpinu og að það sé brugðist við þeim athugasemdum og ábendingum sem fram hafa komið í umfjöllun um málið áður.

Varðandi matið á áhrifunum. Hér eru jú einhverjar töflur. Mér þykir sá texti sem þarna er ekki svara með neinum hætti þeim álitaefnum sem upp hafa komið í umfjölluninni. Mér finnst það miður þannig að ég ætla að hvetja hv. velferðarnefnd til að fara vel yfir það og tryggja það að þegar málið kemur hér aftur inn í 2. umræðu þá getum við allir þingmenn kynnt okkur það vel og áttað okkur á því hvaða ábendingar og athugasemdir hafa fram komið og hver afstaða ráðuneytisins og hv. velferðarnefndar er til þeirra ábendinga. Það er algjörlega nauðsynlegt þegar við greiðum atkvæði um þetta mál, væntanlega einhvern tímann síðar á þessum þingvetri.