stéttarfélög og vinnudeilur.
Herra forseti. Aðför að réttindum vinnandi fólks. Það er það fyrsta sem kemur upp í huga mér við að hlusta á framsögu hv. þm. Jens Garðars Helgasonar. Með þessu frumvarpi eru að rætast blautustu draumar samtaka og hagsmunasamtaka atvinnulífsins um að auka valdheimildir ríkissáttasemjara. Eins og kom fram í máli hv. þingmanns liggur meira undir, heimildirnar ná til þess að ríkissáttasemjari geti stutt við að þvinga önnur stéttarfélög til að fara eftir ákveðnum línum sem eitt leggur. Með öðrum orðum á íslensku: Sá sem semur lægst verður viðmiðið fyrir alla aðra.
Hér er talað eins og þetta sé eitthvert stórkostlegt vandamál. Mér er í fersku minni þegar Efling hafnaði í janúar 2023 að samþykkja miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem endaði síðan fyrir Félagsdómi og vann þar Efling sigur. Í sögulegu samhengi í kjaradeilum á almennum vinnumarkaði er ákveðið verklag varðandi framlagningu miðlunartillagna sem hefur verið með þeim hætti að lagðar eru fram miðlunartillögur með þegjandi samkomulagi beggja aðila. Það sem hv. þingmaður vísar í var algjört frávik frá þessari almennu reglu sem hefur gengið bara ljómandi vel. Ef hv. þingmaður vill líta á samanburðarlönd eða nágrannalöndin sem einhverja fyrirmynd varðandi valdheimildir ríkissáttasemjara, kemur þá til greina líka að bæta í og auka þá verkfallsheimild stéttarfélaga samhliða því eins og er í nágrannalöndunum?