stéttarfélög og vinnudeilur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni fyrir hans spurningu hér. Ég sé að hv. þingmaður er kominn í gamla farið: Aðför að réttindum fólks. Ég myndi segja að það væri aðför að réttindum fólks þegar forystumenn verkalýðsfélaga neita félagsmönnum sínum um að fá að greiða atkvæði um miðlunartillögu. Er það ekki aðför að réttindum launafólks? Þegar ríkissáttasemjari leggur fram miðlunartillögu og forystusveitin, þeir sem eru yfir, neita sínum umbjóðendum um að fá að greiða atkvæði. Er það ekki aðför að réttindum vinnandi fólks? Er það ekki réttur þeirra sem eru í Eflingu, VR eða öðrum félögum að ef kemur fram miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara í deilum sem eru orðnar langvarandi, að þau fái að greiða atkvæði um hana? En forystusveitin neitar sínu fólki um að greiða atkvæði.
Ég hefði haldið, hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson, að það væri ekki síður aðför að réttindum vinnandi fólks. Hvar erum við að tala um hér? Við erum að tala um tvær vikur þar sem hægt er að leggja fram frestun á vinnustöðvun. Tvær vikur. Það er ekki verið að banna vinnustöðvun, það er verið að fresta ef ástæða er til. Það er engin aðför að réttindum vinnandi fólks. Síðan er verið að gefa félagsmönnum verkalýðsfélaganna rétt á því að greiða atkvæði um miðlunartillögu.