stéttarfélög og vinnudeilur.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvarið og ágætisspurningar. Það sem mér þykir mikilvægt að koma inn á og aðeins til að skýra er auðvitað hlutverk samninganefnda, af því að hv. þingmanni er tíðrætt um fyrirkomulag og hlutverk formanns verkalýðsfélags í þessu. Formaður verkalýðsfélags er að vinna með málefni heillar samninganefndar sem er á bak við formanninn og það er auðvitað þannig að það er einn talsmaður sem fylgir málunum eftir og er auðvitað að vinna fyrir sína umbjóðendur, fyrir sitt félagsfólk, til að ná kjarasamningum til þess að vinna að niðurstöðu og bæta kjör þess hóps. Þetta er auðvitað gríðarlega mikilvægt. Já, 99% eða sennilega 99,9% kjarasamninga eru kláruð með samkomulagi, með undirritun kjarasamnings sem fer í atkvæðagreiðslu til félagsfólks viðkomandi félags og þarf að fá niðurstöðu þar til þess að hann haldi gildi sínu. Þetta er auðvitað ferli sem er mjög mikilvægt. Nú datt alveg úr huga mér nákvæmlega spurningin en fyrirkomulagið er auðvitað bara býsna gott á þessu. Varðandi það að breyta hlutverki ríkissáttasemjara, hvort hann þurfi meiri heimildir til þess að leggja fram miðlunartillögu, þá tel ég ekki svo vera. Ég tel ekki ástæðu til þess að breyta því fyrirkomulagi sem er hér á landi og virkar en atkvæðagreiðsla er framkvæmd af samningsaðilum hvorum megin við borðið. Það er ekki ríkissáttasemjari sem framkvæmir atkvæðagreiðsluna, hann felur samningsaðilum að gera það.