stéttarfélög og vinnudeilur.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir ágætisspurningu. Nú ætla ég að koma beint að þessu efni varðandi atkvæðagreiðslu og það þegar miðlunartillögur eru lagðar fram. Eins og ég fór yfir í máli mínu áðan er ferlið með þeim hætti að ríkissáttasemjari ráðgast við samningsaðila um þessa tilætlan hans, að leggja fram miðlunartillögu. Þar hefur venjan verið að samningsaðilar gefa merki um það hvort þeim hugnist það eða ekki og ef samningsaðilar telja það ekki tímabært þá hefur það hingað til ekki verið gert nema í þetta eina skipti. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt að fylgja þessu verklagi. Það er mikilvægt að það sé formfesta í því sem er gert. Niðurstaða Félagsdóms var að félaginu bar ekki að afhenda félagatal. Atkvæðagreiðslan hefði hins vegar getað farið fram ef ríkissáttasemjari hefði falið samningsaðilum að framkvæma atkvæðagreiðsluna, eins og venjan er. Varðandi aðför að réttindum verkafólks tel ég að ef væginu er breytt við samningaborðið þá beri okkur líka að horfa til þess hvaða heimildir verkalýðsfélögin hafa og með hvaða hætti er hægt að beita verkfallsaðgerðum. Mér finnst það vera mikilvægur þáttur, að vera ekki með líklega nánast stífustu reglur á heimsvísu, ég ætla að segja: nánast, um að beita verkföllum. Formfestan er mjög mikil þar ef við horfum á aðrar þjóðir í kringum okkur þannig að ég held að það þurfi að horfa á hlutina í samhengi og þarna þurfa aðilar vinnumarkaðarins að koma saman og finna leiðina.