157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:23]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég las þessa þingsályktunartillögu. Þá hélt ég nú að hún væri eitthvert grín, einhver kerskni sem væri um að ræða. En svo þegar ég hlustaði á hv. þm. Bergþór Ólason flytja þetta mál var hann svo ábúðarfullur að ég er bara farinn að efast. Er þetta eitthvað sem Miðflokkurinn trúir á eða er þetta alvörutillaga sem hv. þingmenn Miðflokksins vilja í raun og veru láta reyna á borgarbúa? Að loka vegum í þrjár, fjórar vikur og jafnvel um haust og vetur? Ég held að það sé ekki vel gert. Og ef það er einhver alvara á bak við þetta þá er þetta samt sem áður grín en þá á kostnað borgarbúa þannig að það væri ágætt að fá það fram hjá hv. þingmanni. Er þetta grín? Eða er þetta alvara?