157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:24]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég bara þakka fyrir andsvar hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Ég bara hafði ekki áttað mig á því að þingmenn Flokks fólksins væru orðnir svo miklir stuðningsmenn borgarlínunnar og þeirra áhrifa sem hún kallar fram því að þessi tillaga er sko alls ekki grín. Þetta er fúlasta alvara vegna þess að ef hv. þm. Sigurjón Þórðarson hefur áhyggjur af því að það að loka þessum veghlutum í þrjár til fjórar vikur núna til að kalla fram áhrifin sem það skapar þá eru það raunheimar. Það er raunveruleikinn sem bíður okkar eftir 7–8 ár miðað við að umferðarþróunarspá í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins standist. Þannig að þetta er framtíðin. Ef hv. þingmanni óar svo við þeirri hugmynd að þessum vegköflum verði lokað núna, um áhrifin af því, er það vegna þess að þetta er framtíðin sem bíður okkar. Þess vegna held ég að við skulum líkja þessu við einhvers lags vekjaraklukku. Þetta gæti vakið fólk upp af værum blundi. Við sáum mistökin sem voru gerð hér í þeirri dómadagsþvælu að byggja nýjan Landspítala uppi á umferðareyjunni við Hringbraut. En bara af því að það var búið að eyða svo miklum tíma og svo mikilli orku í að undirbúa vitleysuna urðu menn að fá að klára hana. Ég og við þingmenn Miðflokksins erum hér að leggja til að við reynum að vakna af þessum svefni sem virðist umlykja áform þeirra sem styðja við málið eins og það liggur fyrir núna, þ.e. innleiðingu borgarlínunnar. Við getum séð hver áhrifin eru. Þá held ég að mönnum verði mjög létt að það havarí sem skapaðist t.d. á Suðurlandsbrautinni verði þó bara í þrjár til fjórar vikur. Mér segir svo hugur að það verði bara einu sinni og léttir að þurfa ekki að gera það tvisvar. Því það verður öllum ljóst hvers lags brjálsemi þarna er í gangi. Þannig að tillagan er í fullri alvöru. Við eigum að gera þetta og það sem kemur mest á óvart er þessi undirliggjandi áhugi þingmanns Flokks fólksins á því að borgarlínuverkefnið haldi áfram án þess að menn grípi svona tækifæri til að átta sig á raunverulegum áhrifum.